Anna á gólfi
Föstudagur 23. apríl 2004 (HMG) - [Sett á vefinn mánudaginn 10. maí 2004]
Við mæðgur erum yfirleitt bara heima við á daginn, ég að reyna að "vinna" og Anna að læra á heiminn.
Anna kát í rólunni sinni. Hún er farin að sitja nokkuð rétt í henni
núna og slær í dótið endrum og eins.
Nærmynd í rólunni.
Seinna sama dag setti ég hana á gólfið, og hún vatt strax upp á sig.
Bak og höfuð mynda 90 gráðu horn - geri aðrir betur!
Aaaaaa....
Þessi dagur var reyndar svolítið sérstakur því ég setti Pétur og úlfinn á
og Anna teygði hausinn alveg dolfallin í áttina að tónlistinni (græjunum í horninu)... :)
Þegar tónlistin var búin fór hún að reyna að snúa sér, en það
tókst ekki alveg. En þetta er alveg að koma hjá henni! :)
Í staðin er hún farin að snúast í hringi á bakinu. Þarna er hún búin að snúa sér
um 90 gráður undir dótinu sínu.
Loksins kom pabbi heim og nennti að leika við hana í alvörunni... :)
"Við setjum hausa saman"... :)
Anna lætur sér fátt um móður sína og myndavélina finnast! :)
Comments:
|