Velkomin! Welcome! Wilkommen! Recepción! Bienvenue!
(This page is mostly in Icelandic, but the occasional English entry does appear... :)
13. október 2002
Hér er að finna fimmta kaflann í dagbók okkar Finns frá Kaliforníu í Bandaríkjunum, hlekkir á hina kaflana eru efst á þessari síðu! Við hjónakornin höfum dvalið hérna úti í rúmlega tvö ár og á þeim tíma höfum við sett rétt tæplega 3000 myndir á vefinn!! Til að byrja með var þessi dagbók aðallega ætluð fjölskyldum okkar og vinum heima á Íslandi, enda erfitt að halda símasambandi yfir sjö til átta tíma tímamismun og ofurhá símagjöld. Nú er svo komið að lesendahópurinn hefur eitthvað stækkað, sem okkur finnst ekkert verra, enda höfum við kynnst nýju fólki í gegnum þessa síðu! :)
Því verður ekki neitað að þessi tvö ár eru þau mest rækilega skráðu ár lífs okkar og verður örugglega skemmtileg lesning seinna meir á ævinni! Í millitíðinni vonum við að þið hafið gaman af lesningunni - og endilega skrifið í gestabókina! :)
- Hrefna og Finnur
|