|
Dagarnir líða
Laugardagur 26. júlí - þriðjudagur 29. júlí 2003 (HMG) - [Sett á vefinn mánudaginn 11. ágúst 2003]
Dagarnir líða alltof fljótt á sumrin!! Eins og svo oft áður kíktum við í heimsókn til Guðrúnar og Snorra á laugardeginum. Við sáum fram á það að hafa ekkert að gera þennan ágæta dag og fengum því leyfi til að koma og "hanga með þeim" og borða með þeim kvöldmat.
Þegar okkur bar að garði var Snorri að leggja lokahönd á nýja
garðpallinn, sem kom í staðinn fyrir þann sem var að fúna í sundur.
Herra Baldur stækkar bara og stækkar.
Í kvöldmat var grillað kjöt og með því. Síðan var að sjálfsögðu gripið í spil
og í þetta sinn kom ekkert nema 3 og 6 upp í Settlers og Hrefna vann með yfirburðum.
Sunnudagur 27. júlí 2003
Okkur til þónokkurrar gremju þá var Finnur kallaður í vinnuna snemma á sunnudeginum,
en þeir bættu það upp með því að bjóða honum (og mér!!) í kvöldmat í staðinn.
Hér eru Wayne, Mark og Anu ásamt Finni á stað í miðbæ Mountain View.
Ekki tókst nú samt betur til í eldhúsinu en það kviknaði eldur!! Við gátum
okkur til að það hefði kviknaði í uppsafnaðri fitu bak við eitthvert tækið. Þeir
reyndu að henda matarsóda á eldinn en ekkert gekk, svo gæinn í hvítu skyrtunni
hægra megin er þarna við það að stökkva upp á borð með slökkvitækið.
Eldurinn slökktur. Okkur til hálfgerðrar hrellingar þá héldu þeir skömmu síðar
áfram að elda mat (ekki fyrir okkur samt) þegar maður hefði haldið að það þyrfti
að þrífa eldhús vel og vandlega eftir að maður hefur notað svona slökkvitæki,
sem inniheldur "guð-má-vita" hvaða efni!
Þriðjudagur 29. júlí 2003 - Finnur 29 ára!!! :)
Afmælið hans Finns fór nú eiginlega fram með kyrrþey þetta árið,
við hjónin fórum reyndar út að borða á "dýran stað" en annars var lítið um læti.
Þeir eru nefnilega komnir með það kerfi í vinnunni hans að halda bara eina
afmælisveislu í mánuði fyrir alla þá starfsmenn sem eiga afmæli þann dag.
Finnur með einu gjöfina sína þennan dag, vatnsheldan kassa
utan um stafrænu myndavélina okkar!! Honum leist nú ekki á
blikinu í byrjun - hélt að ég hefði keypt AÐRA myndavél!! :)
Finnur mátar gripinn
Finnur var nú bara ánægður með þetta og fór strax
að "plotta" næstu köfunarferð... :)
Fyrsta myndin tekin í gegnum nýja kassann! :)
Það skal tekið fram að þetta var bara fyrsta 29 ára afmælið hans Finns,
af vonandi fjölmörgum 29 ára afmælum á næstu árum! :)
|