San Francisco
Föstudagur 6. apríl (FBÞ) - [Sett á vefinn miðvikudaginn 18. apríl]
Á föstudeginum var haldinn svokallaður heimsóknardagur (e. EE Visit day) á deildinni hjá Hrefnu. Hann felur í sér að fólk (væntanlegir nemendur) alls staðar að úr heiminum koma í heimsókn til Stanford að skoða deildina sem það hefur áhuga á að sækja um hjá. Boðið var í morgumat, hádegismat og meiri mat til að kynna hinar ýmsu parta deildarinnar og svo farið með fólkið í útsýnisferðir seinna um daginn. Valið stóð á milli Half Moon Bay eða San Francisco.
Kerri skráði okkur Hrefnu sem ökumenn og reyndist þetta vera fullkomið og langþráð tækifæri til að skoða San Francisco í fyrsta skipti síðan við komum hingað. Maður á náttúrulega ekki að segja frá svona hlutum en á sjö mánaða tímabili hafði okkur ekki tekst (alltaf komið eitthvað upp) að fara einu sinni til San Francisco sem tekur um 45 mín. að keyra, en við höfum hins vegar farið tvisvar til Los Angeles sem tekur 6-9 tíma að keyra.
En nú var sem sagt komið að því að skoða San Francisco með hinum Stanford gestunum...
Lagt var af stað klukkan 17:00 og haldið af stað í hinum ýmsu bílum, leigðir voru sendiferðabílar og sumir (þ.m.t. Kerri) lánuðu eigin bíla til verksins. Stefnt var á að kíkja á San Francisco, fá sér að borða og horfa síðan á bíómynd í IMAX kvikmyndahúsi sem er frægt fyrir risastór tjöld, þrívíddarmyndir og fullkomin hljómtæki.
Við fundum okkur því bílastæðahús í nágrenni IMAX og lögðum af stað fótgangandi með allt fólkið (samtals 25 manns) um San Francisco.
Hrefna í San Francisco
Það var mikið um að vera í San Francisco þetta kvöld, allt iðaði af lífi - búðirnar opnar og mikið af fólki á ferli. Hljómsveitir stilltu sér upp á götuhornum og spiluðu eða sungu, allt eftir sérgrein hljómsveitarinnar. Á einum stað var eins konar "rakarakvartett" sem setti svip sinn á mannlífið og á öðrum stað rokkhljómsveit.
Meiningin var svo að kíkja á Union Square sem á að vera eitt af kennileitunum í San Francisco en við vorum svo óheppin að það var lokað vegna viðgerða og því ekkert þar að sjá. Við gengum því í staðinn aðeins um bæinn og eftir svolítið jaml, japl og fuður var ákveðið að fara inn á pizzastað sem var í nágrenni Union Square (erfitt með svona stóran hóp að ákveða hvar skal borða). Sumir höfðu stungið upp á að fara bara á Jack In The Box en aðrir tóku það ekki í mál - enda hefði verið frekar hallærislegt að fara til San Francisco (sem er m.a. þekkt fyrir góða veitingastaði) og fara á næsta fjöldaframleidda hamborgarastað.
Maturinn var hins vegar í staðinn borðaður á mikilli hraðferð enda stíf dagskrá framundan, mæta þurfti á réttum tíma í bíó og því ekki hægt að dveljast lengi á matsölustaðnum...
Hrefna og skólafélagarnir stilla sér upp fyrir myndatöku í bíósalnum
Tjaldið í bíósalnum var ótrúlega hátt og mikið, en bíósalurinn sjálfur ekkert svakalega stór. Hann hallaði hins vegar mikið niður á við og ekki hefði maður viljað vera á fremsta bekk. Myndin sem við sáum var svona eins konar tónleika-heimildarmynd þar sem fram komu fullt af frægum köppum í tónlistarheiminum á borð við Sting og Macy Gray, bæði á "live" tónleikum og í viðtölum eftir á.
Eftir myndina var svo ákveðið að keyra yfir Golden Gate brúna og horfa yfir borgina frá þeirri hlið, það var reyndar orðið mjög myrkvað og því ekki gott að taka myndir en þetta var sem sagt útsýnið...
Golden Gate brúin að kvöldi til
Það þurfti nokkrar tilraunir til að ná almennilegri mynd af brúnni og í leiðinni var þessi undarlega mynd tekin... :)
Þegar hér var svo komið sögu var haldið heim á leið, gestunum skutlað á hótelin/mótelin sín og bílstjórunum svo skutlað heim.
Og loksins getum við sagt að við höfum "séð" San Francisco, þó að við verðum náttúrulega að kíkja aftur við tækifæri.
Því má bæta við að Hrefna var á vakt sem sendiferðabílstjóri (7 manna bíl) bæði á föstudeginum og laugardeginum að skutla fólki til og frá Stanford. Svo leyfðum við meiri að segja tilvonandi nemendum að skoða íbúðina okkar... vonandi varð þeim ekki meint af! :)
|