Fermingarveisla
Sunnudagur 1. apríl (HMG) - [Sett á vefinn laugardaginn 14. apríl]
Þá var komið að fermingarveislunni sjálfri! Veislan var haldin hjá ömmu okkar og afa í Beykihlíð og það var góð mæting af ættmennum... og eins og vera ber þá uppskar fermingarbarnið ríkulega... og við Finnur vorum knúsuð vel og vandlega!
Lognið á undan veislunni.
Hafdís (vinkona mömmu sem sá um veitingarnar), Ásdís mamma,
Hrefna amma og Arnljótur afi í garðhúsinu í Beykihlíð.
Stoltir foreldrar og nýfermdur drengur.
Finnur, Magnea og Arnar héldu sig nálægt veitingunum...
Hrefna amma, tíguleg að vanda
Og fermingarbarnið fékk tölvu! Hér er verið að kíkja á gripinn.
Nökkvi heldur á Ásdísi Sól, Pétur og Bjarni...
og fullt af kökum!!
Eggert Magnússon (ömmubróðir) og Arnljótur Guðmundsson afi.
Helga stjúpsystir, Bjarni stjúpi og Hanna, vinkona mömmu.
Dagrún og Ríkey frænkur í sófanum með Hrefnu
Hulda kíkir á nýjustu afurð sína og Áslaug fylgist með.
Drengur Ágústsson er nafnlaus sem stendur...
Líney og Magnea - sem á von á sér í júní 2001.
Jóhanna og Helga, vinkonur mömmu.
Sjöfn, vinkona mömmu, og Ella, afasystir.
Hulda móðurstystir með öll afkvæmin!
Unnar Steinn, ónefndur drengur og Ásdís Sól.
Svo var komið að því að taka toppinn af kransakökunni
og Nökkvi var að sjálfssögðu toppatakarinn!
Og hér er svo fermingarbarnið sjálft, með kransakökumanninn.
Og þar með var dvöl okkar Finns svo gott sem lokið á Íslandi. Eftir að veislunni lauk var brunað í Byggðarenda þar sem Finnur henti hörðum diski inn í tölvu systur sinnar. Skömmu síðar var svo brunað ennþá hraðar upp í Mosó, þar sem við borðuðum og pökkuðum draslinu okkar í töskur. Upp úr miðnætti var síðan haldið út á flugvöll og þar með var Íslandsdvölinni formlega lokið í það skiptið. Áætlaður endurkomutími er í síðasta lagi næsta desember... vonandi fyrr!!
|