Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Red Pepper
Laugardagur 29. september (FBÞ) - [Sett á vefinn mánudaginn 8. október]
Við höfum ekki verið nógu dugleg að uppfæra vefsíðuna okkar síðustu daga, kannski helst vegna þess að lítið hefur verið að gerast í kunningjahópnum en þeim mun meira að gera í vinnunni hjá okkur báðum... Hrefna er á fullu að undirbúa fyrirlestur sem hún á að halda á fimmtudaginn og Finnur er nýbúinn með erfiða törn í vinnunni sem endaði á fimmtudagskvöldinu með útgáfu frumgerðar (e. prototype) og svo kvöldverði í því tilefni á indverskum veitingastað á eftir með öllum hugbúnaðarfólkinu (fyrir utan William Wong, sem er frá Hong Kong og er tiltölulega nýbyrjaður hjá Green Border)...
Við hittum þó Stanford-Íslendingana (fyrir utan Elsu og Þráin, Elsa í útileigu og Þráinn í New Mexico) á mexíkóskum veitingastað í nágrenni við okkur sem heitir Red Pepper. Þetta var á laugardeginum um síðustu helgi, og hittum við í fyrsta skipti Björgvin - kærasta Krístinar og Hannes sem var í heimsókn til að reyna að gera upp á milli skóla sem hann langar að sækja.
Við borðuðum á staðnum og héldum svo niður í miðbæ Palo Alto til að fá okkur eftirrétt, ítalskan Gelato ís og notuðum tækifærið og smelltum af nokkrum myndum...
Fyrir utan ísbúðina
Berglind, Styrmir, Logi og Finnur
Kristín, Björgvin og Finnur
Hrefna og Styrmir
Logi og Rikki
Hannes og Kristín
Eftir ísátið var gengið niður í miðbæ Palo Alto og leitað að hentugum stað þar sem hægt var að setjast niður og spjalla saman. Hann fannst að lokum á University Avenue, kaffihús sem nefnist University Coffee House og var setið þar og spjallað yfir bjór þangað til mönnum fannst nóg komið og var þá haldið heim á leið...
|