Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
DVD spilari
Þriðjudagur 18. september (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 20. september]
Dagur tvö í sumarfríi - og ég gerði ekki handtak! Jú reyndar... ég fór og náði í póstinn og þá beið kassi með nýja DVD spilaranum okkar við póstkassann. :)
Það var nefnilega svo að DVD spilarinn okkar síðasta vetur var tölvan okkar... en svo dó tölvan og eftir algjöra yfirhalningu þá neitaði hún að taka við kortinu sem við þurfum til að geta tengt hana við sjónvarpið. Við fórum því á netið og eftir smá íhugun ákváðum við að reyna að kaupa okkur spilara sem gæti ráðið við mörg "region", þ.e. gæti spilað DVD diska bæði frá USA og Evrópu. Eftir smá leit þá rákumst við á Sampo DVE611 sem er faktískt ekki margra-"region" spilari, en með því að búa til geisladiska eftir kúnstarinnar reglum þá má breyta um region í honum. Og til að gera spilarann ennþá eftirsóknarverðari þá kostaði hann bara $160, eða um 16 þús. ísl. krónur - sem er það sama og maður borgar fyrir óbreytanlega spilara í CostCo. Og rúsínan í pylsuendanum er að við getum farið með hann heim til Íslands og notað hann óbreyttan þar! :)
Kassinn kominn
Spennan magnast...!!
Ég tók spilarann upp úr kassanum og stakk honum í samband... og ekkert gerðist!! "Heimska drasl" hugsaði ég og skrifaði tölvupóst til " DealMountain" sem seldi okkur spilarann. Svo var ég við það að skrúfa lokið af þegar ég ákvað að reyna nú að juða meira í rafmagnstengingunni - og viti menn... þegar ég togaði í snúruna þá hrökk hann í gang... og hefur gengið snuðrulaust síðan. :)
Spilarinn kominn á sinn stað
Og hér er svo allt DVD safnið okkar!! Ekki beisið það...
Um kvöldið horfðum við svo á High Fidelity í nýja leiktækinu okkar og leist vel á! :)
|