Anna klippt
Miðvikudagur 9. nóvember 2005 (HMG) [Sett á netið 12. desember 2005]
[I give Anna the most disasterous haircut ever... No more cutting for me!! :)]
Anna Sólrún var komin með toppinn niður í augu svo ég ætlaði aðeins að snyrta hann. Til að prófa eitthvað nýtt þá setti ég Önnu Sólrúnu í bað og klippti hana í baðinu, sem gekk rosalega vel (engin öskur) fyrir utan að ég misreiknaði eitt klippið all svakalega og hún endaði með ofurstuttan topp öðru megin. Þá var bara að reyna að laga skaðann og útkoman var verulega stuttur toppur all staðar...
Ömmur og afar eru beðin velvirðingar... :)
Nýklippt...
... og með kisu í rassvasanum! :)
Sjálfsmynd.
Púrrr! :)
Hlaupandi í eldhúsinu. Ég ætlaði að klippa hana í stólnum þarna, en snérist
hugur á síðustu stundu. Það hefði verið algjört öskur-fest!
Bara smá skakkur toppur... :) Þetta eru annars föt sem hún fékk frá
Ásdísi ömmu sinni í jólagjöf en buxurnar eru ennþá aðeins of stórar...
Eftir smá pissuslys var hún sett í nýjar buxur - og fundin spenna í hárið... :)
Upptekin við að kubba.
Hlaupið að eins um...
... áður en hún hélt áfram að kubba.
Comments:
|