2006-11-13Uncategorized Standard
Mánudagur 13. nóvember 2006
Tilviljanir?!
Ég fór á minningaflipp núna áðan í tilefni af því að Fayaz skrifstofu-félagi er við það að útskrifast og flytja heim aftur til Malasíu. Hver veit hvort við eigum nokkurn tíman eftir að sjá hann aftur?!!? Hvað um það, minningaflippið fólst í því að skoða vefsíðuna okkar frá því 2000 og 2001 og þar á meðal fór ég inn á þessa síðu.
Nema hvað… Neðst á síðunni er mynd af Mark nokkrum Smith sem var “teaching assistant” fyrir EE276 kúrsinn. Hann útskrifaðist fyrir nokkrum árum og ég hef ekki séð hann síðan… þangað til núna áðan er hann gekk inn á skrifstofuna mína?!?!?!?! Við spjölluðum aðeins um lífið og tilveruna, hann vinnur núna í Boston og á þrjú börn og er víst kátur með sitt.
Fríkí!!!