Miðvikudagur 19. júní 2002
Bara vika í Evrópuferð! 🙂
Ég skilaði af mér endurskrifaðri skýrslunni í dag, en fattaði svo síðar að ég hafði mistúlkað smá dót á síðustu blaðsíðunni, en ég er að hugsa um að leyfa því að eiga sig í smá stund. Annars sat ég bara og lék mér í Matlab í dag, gerði auðvelda partinn af því sem ég á að vera að gera. Um fimmleytið var ég síðan við það að rölta upp að Stóra Disknum til að ýta á nokkra takka, þegar það rann upp fyrir mér að Linscott lét mig aldrei hafa lyklana!!! Og hann er farinn til Idaho og kemur ekki fyrr en á sunnudaginn!! Ég sendi honum því tölvupóst og hjólaði heim í staðinn.
Um kvöldið fórum við Finnur út að borða á indverskum veitingastað í miðbæ Mountain View og síðan skruppum við í bíó á “About a Boy” með Hugh Grant sem ég hafði lúmskt gaman að. Mér heyrðist Finnur hlæja nokkrum sinnum, en hann gaf ekki mikið fyrir myndina eftir á… 😉