Hér kemur ýmislegt varðandi verkefni mitt í KEN004F – Kennsluþróun og starfendarannsóknum.
Greinar frá Guðrúnu:
- Um greinina “Academic practice in transition: hidden stories of academic identities” eftir Churchman og King. Tvær mjög ólíkar sögur af starfinu (gleði og örvænting).
- Um greinina “Making a mess of academic work: experience, purpose and identity” eftir Malcolm og Zukas. Um að það gangi ekki upp að skipta vinnu akademískra starfsmanna upp í ‘kennslu’, ‘rannsóknir og ‘stjórnun, og að það valdi starfsmönnum hugarangri. Einnig að klukkustundirnar sem eru áætlaðar dugi engan veginn til að halda uppi háskóla.
- Um greinina “The reluctant academic: early-career academics in a teaching-oriented univerisity” eftir Helen Gale. Greinargóð lýsing á því sem skiptir ný-kennara máli í raun og veru – ég sé sjálfa mig þarna!
- Um greinina “Caught with their constructs down: Teaching development in the pre-tenure years” eftir Nicola Simmons, 2011. Farið yfir þróun kennara fyrstu 5 árin. Áhugavert. Þróun: Survival, Safety, Belonging, Self-Esteem, Self-Actualizing.
Frá Silju:
- Um greinina “Balancing Work–family Life in Academia: The Power of Time” eftir Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur og Thamar Heijstra. Um það hvað háskólakennarar (og þá einkum konur) vinni mikið á kvöldin.
- Um blogg-grein konu sem fór á ráðstefnu fyrir pre-tenure konur. Byrjar með samviskubitstárum yfir kvöldvinnu og móðurangist, endar með þremur take-aways um hvernig gera má starfið betra.
Leit á scholar.google.com að…
engineering faculty burnout
- Um greinina “Exploring burnout among university faculty: incidence, performance, and demographic issues” eftir James R. Lackritz, Teaching and Teacher Education. Skilgreining á burnout, orsökum, einkennum, og hverjir lenda helst í því.
Pingback: Kennslufræði-blogg | Lestrardagbók Hrefnu í kennslufræði