{"id":106,"date":"2010-11-03T12:21:46","date_gmt":"2010-11-03T12:21:46","guid":{"rendered":"http:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/?p=106"},"modified":"2011-01-26T10:09:05","modified_gmt":"2011-01-26T10:09:05","slug":"timi-lotunnar-namsmat-partur-1","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/timi-lotunnar-namsmat-partur-1\/","title":{"rendered":"T\u00edmi lotunnar: N\u00e1msmat, partur 1"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 helltist yfir mig alveg gr\u00ed\u00f0arleg \u00fereyta \u00ed t\u00edmanum \u00ed g\u00e6r, og t\u00edminn var \u00feess vegna ekki n\u00e6rri \u00fev\u00ed jafn skemmtilegur og allir t\u00edmarnir hinga\u00f0 til. \u00a0Kannski var \u00fea\u00f0 bara byrjun \u00e1 skammdegis\u00fereytu, e\u00f0a kannski var \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 umfj\u00f6llunarefni\u00f0 var ekki af l\u00e9ttari kanntinum, N\u00c1MSMAT, sem \u00e9g velti miki\u00f0 v\u00f6ngum yfir, en hef ekki fundi\u00f0 neina g\u00f3\u00f0a lausn \u00e1.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g t\u00f3k vi\u00f0 m\u00ednum k\u00fars \u00ed haust, \u00fe\u00e1 s\u00e1 \u00e9g \u00e1 g\u00f6mlum gl\u00e6rum a\u00f0 s\u00ed\u00f0ust tv\u00f6 \u00e1r hef\u00f0u veri\u00f0 sett fyrir<\/p>\n<ul>\n<li><strong>12 heimad\u00e6mi<\/strong>, alls 15% af lokaeinkunn (\u00ed raun ur\u00f0u heimad\u00e6min bara 10 \u00ed fyrra)<\/li>\n<li><strong>1 mi\u00f0svetrarpr\u00f3f<\/strong> sem var 25% af lokaeinkunn<\/li>\n<li><strong>1 lokapr\u00f3f<\/strong> sem var 60% af lokaeinkunn<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00c9g vildi ekki vera a\u00f0 hr\u00f3fla of miki\u00f0 vi\u00f0 &#8220;hef\u00f0um&#8221; svo a\u00f0 \u00e9g lag\u00f0i af sta\u00f0 \u00ed haust me\u00f0<\/p>\n<ul>\n<li><strong>12 heimad\u00e6mi<\/strong>, sem giltu 20% af lokaeinkunn (skila 9 til a\u00f0 f\u00e1 pr\u00f3ft\u00f6kur\u00e9tt)<\/li>\n<li><strong>1 mi\u00f0svetrarpr\u00f3f<\/strong> sem var 25% af lokaeinkunn (og nau\u00f0synlegt fyrir pr\u00f3ft\u00f6kur\u00e9tt)<\/li>\n<li><strong>1 lokapr\u00f3f<\/strong> sem var 55% af lokaeinkunn<\/li>\n<\/ul>\n<p>&#8230; og ag\u00f3n\u00edsera\u00f0i miki\u00f0 yfir \u00feessari 5% breytingu. \u00a0\u00deegar lei\u00f0 \u00e1 misseri\u00f0 og \u00e9g setti fyrir heimad\u00e6mi sem \u00f6llum gekk illa og \u00fe\u00e1 kr\u00edu\u00f0u nemendurnir fram \u00fe\u00e1 breytingu a\u00f0 bara 10 bestu heimad\u00e6min giltu til lokaeinkunnar. \u00a0\u00dea\u00f0 kom m\u00e9r \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri yfirleitt m\u00f6guleiki, en fannst \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0 hugmynd.<\/p>\n<p>Sem stendur hef \u00e9g ekki leitt hugann miki\u00f0 a\u00f0 pr\u00f3funum. \u00a0Reyndar er \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 \u00ed \u00feessum k\u00fars eru \u00e1kve\u00f0in kaflaskil um mi\u00f0biki\u00f0, og gott ef f\u00f3lk hefur lesi\u00f0 fyrri partinn, \u00e1\u00f0ur en haldi\u00f0 er \u00ed seinni partinn &#8211; og mi\u00f0svetrarpr\u00f3fi\u00f0 \u00fdtir undir \u00fea\u00f0. \u00a0Lokapr\u00f3fi\u00f0 ver\u00f0ur svo l\u00edklega 2 spurningar af 7 \u00far fyrri partinum. \u00a0M\u00edn vegna m\u00e6tti \u00fea\u00f0 alveg gilda minna heldur en \u00fea\u00f0 gerir \u00ed dag &#8211; og \u00feess vegna v\u00e6ri \u00e9g til \u00ed a\u00f0 hafa tv\u00f6 &#8220;lokapr\u00f3f&#8221;, \u00fea\u00f0 er skipta k\u00farsinum alfari\u00f0 \u00ed tvennt og gera hann a\u00f0 tveimur &#8216;lotum&#8217;.<\/p>\n<p>(Hli\u00f0arp\u00e6ling: \u00a0K\u00edkti \u00e1<a href=\"http:\/\/starfsfolk.khi.is\/amalia\/namsmat.htm\"> fyrirlestrargl\u00e6rur Amal\u00edu Bj\u00f6rnsd\u00f3ttur<\/a> og s\u00e1 a\u00f0 h\u00fan tala\u00f0i me\u00f0al annars um hinar \u00fdmsu ger\u00f0ir pr\u00f3fspurninga, og virtist vera a\u00f0 segja a\u00f0 &#8216;r\u00e9tt e\u00f0a rangt&#8217; spurningar s\u00e9u \u00e6\u00f0ri til d\u00e6mis krossaspurningum. \u00a0\u00dea\u00f0 ger\u00f0i mig k\u00e1ta \u00fev\u00ed \u00e9g var me\u00f0 svolei\u00f0is spurningar \u00e1 mi\u00f0svetrarpr\u00f3finu &#8211; sem \u00e9g reyndar apa\u00f0i eftir eldri pr\u00f3fum. \u00a0\u00de\u00e6r komu almennt vel \u00fat.)<\/p>\n<p>Var\u00f0andi heimad\u00e6min, \u00fe\u00e1 er svo komi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g er \u00ed mi\u00f0ju kafi a\u00f0 semja heimad\u00e6mi n\u00famer T\u00cdU og er alveg komin me\u00f0 upp \u00ed kok af \u00feessum heimad\u00e6mum. \u00a0\u00deau eru a\u00f0 taka mig alveg gr\u00ed\u00f0arlegan t\u00edma, b\u00e6\u00f0i a\u00f0 semja \u00feau (er allt n\u00e1msefni\u00f0 &#8216;representa\u00f0&#8217;?, tekur 4-5 klst), semja lausnirnar (verkfr\u00e6\u00f0in er alltaf me\u00f0 &#8216;r\u00e9tt&#8217; og &#8216;r\u00f6ng&#8217; sv\u00f6r\/a\u00f0fer\u00f0ir, stundum miki\u00f0 af myndum\/forritun, tekur 5-6 klst) og svo fara yfir d\u00e6min (ca. 15 m\u00edn per nemanda, \u00e1 milli 4-5 klst vikulega). \u00a0\u00cd draumum m\u00ednum sem \u00e9g lausnirnar um lei\u00f0 og \u00e9g vel d\u00e6min, en \u00fea\u00f0 hefur ekki gengi\u00f0 \u00ed &#8216;praks\u00eds&#8217; enn\u00fe\u00e1. \u00a0Sum s\u00e9 13-16 klst vikulega, e\u00f0a um tveir vinnudagar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 togast \u00fdmislegt \u00e1 \u00ed hausnum \u00e1 m\u00e9r var\u00f0andi heimad\u00e6mi, til d\u00e6mis<\/p>\n<p><strong>Eigin reynsla sem nemandi<\/strong><\/p>\n<p><span style=\"font-family: Georgia, 'Bitstream Charter', serif; line-height: 24px; font-size: 16px;\"> <\/span><\/p>\n<ul>\n<li>\u00c9g man eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 \u00ed 4-5 k\u00farsum (miserfi\u00f0um) \u00ed einu og \u00fe\u00e1 er ekki nokkur lei\u00f0 a\u00f0 &#8216;lesa s\u00e9r til yndisauka&#8217; fyrir t\u00edma, e\u00f0a eftir t\u00edma. \u00a0\u00dea\u00f0 eina sem ma\u00f0ur &#8216;les&#8217; \u00ed kennslub\u00f3kinni er \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur \u00fearf til a\u00f0 leysa heimad\u00e6min.<\/li>\n<li>Heimad\u00e6min eru algj\u00f6r handalei\u00f0ing, en heldur manni vi\u00f0 efni\u00f0.<\/li>\n<li>Allir k\u00farsar sem \u00e9g man eftir a\u00f0 hafa teki\u00f0, hafa veri\u00f0 me\u00f0 einhvers konar heimad\u00e6mi &#8211; en kannski ekki vikuleg.<\/li>\n<li>Ef \u00fea\u00f0 eru engin heimad\u00e6mi \u00ed einhverjum k\u00farsi, \u00fe\u00e1 f\u00e6r hann enga &#8216;athygli&#8217; fyrir utan a\u00f0 ma\u00f0ur m\u00e6tir \u00ed t\u00edma og veit gr\u00f3flega hva\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 tala um.<\/li>\n<\/ul>\n<p><strong>Eigin reynsla sem kennari<\/strong><\/p>\n<ul>\n<li>\u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 semja &#8216;g\u00f3\u00f0&#8217; heimad\u00e6mi sem eru leysanleg \u00e1 (r\u00famlega) einu eftirmi\u00f0degi &#8211; en eru samt &#8216;all inclusive&#8217;.<\/li>\n<li>\u00dea\u00f0 tekur mikinn t\u00edma a\u00f0 lesa yfir d\u00e6mi \u00ed kennslub\u00f3kum.<\/li>\n<li>\u00dea\u00f0 er enn\u00fe\u00e1 erfi\u00f0ara a\u00f0 semja lausnirnar, einkum \u00fev\u00ed a\u00f0 tilb\u00fanar lausnir \u00ed \u00f6\u00f0rum kennslub\u00f3kum eru oft vitlausar e\u00f0a illa fram settar. \u00a0Mikill t\u00edmi fer \u00ed a\u00f0 \u00edhuga or\u00f0alag og framsetningu (b\u00faa til myndir).<\/li>\n<li>Finn a\u00f0 \u00e9g set s\u00ed\u00f0ur fyrir d\u00e6mi sem bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 margv\u00edslegar lausnara\u00f0fer\u00f0ir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 tekur hr\u00e6\u00f0ilega langan t\u00edma a\u00f0 fara yfir svolei\u00f0is. \u00a0Allt ver\u00f0ur heldur ni\u00f0urnj\u00f6rva\u00f0 og &#8216;\u00fathugsa\u00f0&#8217; fyrir fram. \u00a0Ekki miki\u00f0 r\u00fam fyrir eigin h\u00f6nnun\/hugsun nemenda.<\/li>\n<li>Heimad\u00e6min eru g\u00f3\u00f0 lei\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 strax a\u00f0 eitthva\u00f0 er a\u00f0 fara fyrir ofan gar\u00f0 og ne\u00f0an.<\/li>\n<li>\u00c9g f\u00e6r flestar og bestu spurningarnar um d\u00e6min ef \u00e9g kl\u00fa\u00f0ra einhverju sj\u00e1lf &#8211; og hef reynt a\u00f0 pakka ekki \u00ed v\u00f6rn \u00feegar \u00fea\u00f0 gerist<\/li>\n<\/ul>\n<p><strong>Random hugmyndir fyrir framt\u00ed\u00f0ina<\/strong><\/p>\n<ul>\n<li>L\u00e1ta nemendur semja 1-2 d\u00e6mi og lausnir vi\u00f0 d\u00e6min, l\u00e1ta \u00fea\u00f0 gilda 5% e\u00f0a eitthva\u00f0 af lokaeinkunn.<\/li>\n<li>Hafa f\u00e6rri heimad\u00e6mi. \u00a012 stykki er OF MIKI\u00d0. \u00a0V\u00e6ri n\u00f3g a\u00f0 hafa d\u00e6mi \u00e1 2ja vikna fresti? \u00a0\u00dearf \u00fe\u00e1 a\u00f0 covera 2 vikur af efni?<\/li>\n<li>H\u00e6tta a\u00f0 fara efnislega yfir d\u00e6min &#8211; og merkja bara vi\u00f0 ef<em> reynt hefur vi\u00f0<\/em> allt, h\u00e1lft e\u00f0a ekkert af d\u00e6mi.<\/li>\n<li>Gera eins og einn kennarinn vi\u00f0 deildina sem afhendir heimad\u00e6mi og lausnir vi\u00f0 \u00feeim samt\u00edmis.\n<ul>\n<li>Allt n\u00e1msmati\u00f0 hj\u00e1 henni er \u00ed \u00feremur pr\u00f3fum sem eru jafndreif\u00f0 yfir n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 &#8211; og \u00fea\u00f0 er ekkert &#8216;overlap&#8217; \u00e1 milli pr\u00f3fsefnisins (virkar sem &#8216;lotun\u00e1mskei\u00f0&#8217;).<\/li>\n<li>\u00de\u00fd\u00f0ir hins vegar a\u00f0 \u00e9g \u00feurfi a\u00f0 eiga \u00f6ll heimad\u00e6min.<\/li>\n<li>Samtal vi\u00f0 nemendur lei\u00f0ir l\u00edka \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feau vinna ekkert fyrir \u00feann k\u00fars nema bara til a\u00f0 undirb\u00faa hvert pr\u00f3f.<\/li>\n<\/ul>\n<\/li>\n<li>Hva\u00f0 gerist svo \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri? \u00a0Er \u00e9g a\u00f0 fara a\u00f0 setja d\u00e6min fyrir \u00f3breytt? \u00a0Hva\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e1 sem eru a\u00f0 taka k\u00farsinn aftur? \u00a0F\u00e1 \u00feau \u00fe\u00e1 bara free-ride og 20% sj\u00e1lfgefin? \u00a0Er \u00e9g a\u00f0 fara a\u00f0 leggja \u00ed \u00e1l\u00edka vinnu aftur \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri \u00fe\u00e1?<\/li>\n<\/ul>\n<p>Hafandi allt \u00feetta \u00ed huga ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 mitt mesta s\u00e1larstr\u00ed\u00f0 \u00feessa dagana er var\u00f0andi k\u00fars sem \u00e9g \u00e1 a\u00f0 kenna \u00e1 n\u00e6sta misseri. \u00a0S\u00e1 k\u00fars hefur veri\u00f0 kenndur \u00ed \u00e1ratugi af kennara sem n\u00fa er a\u00f0 fara \u00e1 eftirlaun, en kann efni\u00f0 aftur \u00e1 bak og \u00e1fram &#8211; og notast ekki vi\u00f0 neina s\u00e9rstaka b\u00f3k. \u00a0H\u00e9r er \u00e9g \u00fev\u00ed a\u00f0 renna svo til algj\u00f6rlega blint \u00ed sj\u00f3inn. \u00a0Hef reyndar sj\u00e1lf teki\u00f0 \u00e1l\u00edka n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1\u00f0ur, en \u00fea\u00f0 voru tv\u00f6 graduate-n\u00e1mskei\u00f0 sem \u00feetta n\u00e1mskei\u00f0 sameinar \u00ed eitt.<\/p>\n<p>M\u00e9r skilst a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e6tlast til a\u00f0 \u00e9g setji upp verklegar \u00e6fingar, sem er eitthva\u00f0 alveg n\u00fdtt fyrir m\u00e9r &#8211; og \u00fear er kominn alveg s\u00e9rstakur n\u00e1msmatsh\u00f6fu\u00f0verkur, fyrir utan allt hitt. \u00a0\u00c9g vil ekki reyna a\u00f0 setja fyrir 12 heimad\u00e6mi aftur, og \u00e9g vil heldur ekki drukkna \u00ed erfi\u00f0um sk\u00fdrslum.<\/p>\n<p>Eftir t\u00edmann \u00ed g\u00e6r \u00fe\u00e1 er \u00e9g n\u00fa a\u00f0 \u00edhuga hvort \u00e9g geti sn\u00fai\u00f0 upp \u00e1 handleggi nemendanna og fengi\u00f0 \u00fe\u00e1 til a\u00f0 sko\u00f0a sk\u00fdrslur hvers annars. \u00a0\u00dea\u00f0 myndi helst ganga upp fyrir verklegt. \u00a0\u00de\u00e1 \u00fearf \u00e9g l\u00edka kannski a\u00f0 huga a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 setja upp &#8216;leynin\u00famerakerfi&#8217; til a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir tilfinninga-vesen og &#8216;feimni&#8217;. \u00a0\u00dea\u00f0 sem \u00e9g hef helstar \u00e1hyggjur af er a\u00f0 nemandurnir kvarti yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau s\u00e9u a\u00f0 gera vinnuna m\u00edna fyrir mig.<\/p>\n<p>Anna\u00f0 sem \u00e9g f\u00e9kk \u00fat \u00far t\u00edmanum \u00ed g\u00e6r er a\u00f0 \u00e9g hef leyfi til a\u00f0 kalla nemendur inn \u00e1 &#8216;teppi\u00f0&#8217; til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a h\u00f6rmulega \u00fatkomu \u00ed pr\u00f3fi. \u00a0M\u00e9r finnst eins og \u00e9g hafi misst af t\u00e6kif\u00e6rinu \u00feetta misseri\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 pr\u00f3fi\u00f0 var um mi\u00f0jan okt\u00f3ber, en \u00feetta er eitthva\u00f0 sem \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 reyna a\u00f0 gera \u00ed framt\u00ed\u00f0inni.<\/p>\n<p>\u00deess fyrir utan er \u00e9g a\u00f0 reyna a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 ekki n\u00e6rri m\u00e9r a\u00f0 skilabo\u00f0 t\u00edmans \u00ed g\u00e6r voru a\u00f0 miklu leyti &#8220;You&#8217;re Doing It Wrong!&#8221;, sem \u00e9g er eiginlega samm\u00e1la, en gallinn er a\u00f0 \u00e9g veit ekki hvernig \u00e9g get gert \u00feetta \u00f6\u00f0ruv\u00edsi svo vel megi vera &#8211; og finnst \u00e9g bundin af &#8216;hef\u00f0um&#8217; og eigin reynslu, \u00fev\u00ed \u00e9g hef ekki or\u00f0i\u00f0 miki\u00f0 fyrir &#8216;progressive&#8217; kennslua\u00f0fer\u00f0um \u00ed m\u00ednu l\u00edfi, ef undanskilin eru leiksk\u00f3li og grunnsk\u00f3li barnanna \u00ed USA.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 helltist yfir mig alveg gr\u00ed\u00f0arleg \u00fereyta \u00ed t\u00edmanum \u00ed g\u00e6r, og t\u00edminn var \u00feess vegna ekki n\u00e6rri \u00fev\u00ed jafn skemmtilegur og allir t\u00edmarnir hinga\u00f0 til. \u00a0Kannski var \u00fea\u00f0 bara byrjun \u00e1 skammdegis\u00fereytu, e\u00f0a kannski var \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/timi-lotunnar-namsmat-partur-1\/\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[12,25,20],"tags":[],"class_list":["post-106","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-efni-fra-nemendum","category-ken212f","category-namsmat"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/106","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=106"}],"version-history":[{"count":19,"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/106\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":108,"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/106\/revisions\/108"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=106"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=106"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/kennslufr\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=106"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}