Verkefni vikunnar: Nýting og áhrif upplýsingatækni á mína kennslu

Spurt er: “Hvernig nýti ég upplýsingatækni í kennslu og hvernig mætti nýta hana? Hvaða áhrif hefur upplýsingatækni haft á kennsluhætti þína?”

Hvernig nýti ég upplýsingatækni í kennslu?

Mín kennsla hefur verið heldur ‘einföld’ hvað varðar notkun á upplýsingatækni.  Mín leið til að búa til fyrirlestra hefur verið að setjast niður með bókina, og stafla af hvítum blöðum.  Síðan les ég mér til um það sem ég er að fara að fjalla um, og bý til handskrifaðar ‘glærur’.  Hvert efni tekur yfirleitt 10-12 glærur (með ‘Yfirliti’ og ‘Samantekt’ í upphafi og enda).

Þegar handskrifaði glærupakkinn er kominn, þá opna ég PowerPoint, og bý til samsvarandi glærur þar, nema hvað að ég sleppi út öllum formúlum og stærðfræði, því það er svo tímafrekt að setja það inn í tölvu.  Á móti kemur að ég lími oft inn myndir úr bókinni, sem eru ekki til staðar í handskrifuðu glósunum mínum.

Í fyrirlestrinum, þá skín PowerPoint glæran á hvíta töflu, og ég fylli inn í eyðurnar (oft með hjálp nemenda).  Mér finnst þetta þægilegt, því að þá losna ég við að skrifa langar setningar upp á töflu, sem mér finnst leiðigjarnt, tímafrekt og óþægilegt.

Ég hef endrum og eins farið inn á netið (og þá helst inn á Wikipediu sem er öflug í fjarskiptaverkfræði) og sýnt hluti sem þar finnast ‘í beinni’.  Ég hef einu sinni beðið fólk að fara sjálft inn á netið til að leita sér upplýsinga um einhvert ákveðið fyrirbæri.  Einu sinni ætlaði ég að spila hljóðmerki fyrir bekkinn, en þá uppgötvaði ég að stofan hefur ekkert hljóðkerfi!!  Það eyðilagði líka fyrir mér þegar mér datt í hug eitt skipti að finna ákveðinn hlut inn á YouTube.

Ég hef ekki notað eMission til að taka upp fyrirlestra, enda ekki hentugt kerfi fyrir minn kennslumáta.  Ég veit að í stofunni er einhver fín græja sem á víst að taka upp skriftina manns þegar maður skrifar á töfluna, en ég þegar ég ætlaði að prófa hana, þá fann ég ekki forritið.  Ég þarf að muna að spyrja tölvumann deildarinnar um það.

Í lokin, þá er ég farin að taka við heimadæmaverkefnum rafrænt, en prenta þá ekki út það sem ég fæ, heldur skrifa bara niður einkunnina á eitt hvítt blað (og mögulega sendi bara tölvupóst í framtíðinni).

Hvernig mætti nýta upplýsingatækni í þinni kennslu?

Ég sé fyrir mér að reyna að finna stutt vídeó til að sýna krökkunum í upphafi tíma, sérstaklega ef ég finn eitthvað vel gert (YouTube?).  (Þetta á líklega meira við um kúrsinn sem ég er að fara að kenna, frekar en það sem ég var að kenna).

Ég þarf að íhuga með þennan ‘töflu-skriftarnema’ sem er í stofunni, og sjá hvort að hann virkar, því að margir nemendur eru pirraðir á því að hafa ekki fullbúnar glósur við höndina.

Ég sé fyrir mér að hver nemandi skili mér einu verkefni rafrænt, þá með vefmyndavél eða eMission, eða eitthvað.  Það ætti að gera það örlítið meira spennandi?

Ég hef ekki þurft að taka upp fyrirlestra fyrirfram, en ég gæti hugsað mér að athuga það.  Ég gæti líka íhugað að taka upp stuttan (2-5 mín?) bút um ‘hvað skipti máli í þessum tíma’?

Hvaða áhrif hefur upplýsingatækni haft á kennsluhætti þína?

Ef PowerPoint nyti ekki við, þá myndi ég eyða langt um meiri tíma í að skrifa á töfluna.  Þar sem að ég hafði aðgang að rafrænum skrám með myndunum í bókinni (og annarri bók) þá var mjög þægilegt að líma þær inn.  Á móti kom að ég var alltaf á síðustu stundu með að klára glærurnar, og bara lítill hluti nemenda hafði fyrir að prenta þær út og glósa inn á þær.  Flestir bara mættu, sátu og hlustuðu (og spurðu endrum og eins).

Ég væri líka að miklu leyti handalaus ef internetsins nyti ekki við, því þar er hafsjór af fróðleik og myndefni sem ég hef getað notað.

Það sem hefur svolítið vantað hjá mér, er að virkja nemendur í að fara og leita uppi upplýsingar, þó svo að ég hafi beðið um það í einu eða tveimur heimadæmum.

Annað sem upplýsingartæknin hefur gert er að í dag finnst mér sem að nemendur þurfi eiginlega ekki að kunna mikið af staðreyndum, heldur frekar vita af þeim, eða skilja gunnhugsunina á baki þeim.  Mér finnst eins og í dag sé svo mikill hafsjór af upplýsingum innan seilingar, að ég þurfi að íhuga það betur hvað ég sé að kenna, og á hvaða forsendum.  Er til dæmis réttlætanlegt að fólk eigi að kunna einhverjar formúlur?  Verður þeim ekki bara flett upp?

Mér finnst örlítið eins og að upplýsingatæknin öll (og þá meina ég internetið, og tölvusamfélagið sem upp er að spretta) sé að breyta því hvernig upplýsingar og kunnáttu fólk þarf að hafa til að vera ‘virkt’ og ‘afkastamikið’.

This entry was posted in KEN212F, Upplýsingatækni. Bookmark the permalink.