Við hittumst að þessu sinni í húsnæði menntavísindasviðs í Stakkahlíðinni. Þar tók á móti okkur Rúnar Sigurðsson. Hann fór yfir notkun á eMission upptökukerfinu, sem uppsett er á tölvum HÍ. Síðan var okkur skipt upp í litla hópa, og hver hópur átti að búa til lítið kennslumyndband. Við höfðum kaffitímann til að ráða ráðum okkar.
Ég dró minn hóp út í að búa til kennslumyndband um hvernig maður getur fengið akstursleiðbeiningar (og svo gönguleiðbeiningar) með því að nota ‘maps’ í Android farsíma. Mér sýndist eMission forritið að nokkru leyti vera gott, fyrir utan að það býður ekki upp á neina “editing” möguleika. Þannig að allar villur, mistök, hik og klúður fylgja með lokaeintakinu.
Að því loknu þá settumst við eitt og eitt fyrir framan vefmyndavélina og tókum upp lítinn stubb um eitthvað sem hefur reynst okkur vel í kennslu. Ég talaði um að nota “1-2-allir” í tíma (sjá ‘Tilraunastarfsemi‘), sem ég hafði ekki fattað að Guðrún ætlaði að tala um – úps!! Biðst fyrirgefningar!
Að lokum fórum við upp á efri hæðina og skoðuðum lítið upptökustúdíó sem þar er búið að útbúa. Þar skoðuðum við enn eitt forrit sem styður fjarkennslu, en það er alveg stolið úr mér hvað það heitir núna.
Hlekkir
Til að skoða eMission upptökur skal fara á http://upptokur.hi.is
Til að sýsla með eMission upptökur skal fara á https://upptokur.hi.is/controlpanel