[Innlegg á Moodle-umræðuvef námskeiðs.]
Sæl,
Nú eru liðnir nokkrir dagar síðan ég horfði á myndina Teaching Teaching and Understanding Understanding. Það sem situr helst eftir er atriðið þar sem nemendurnir (stelpan og strákurinn) eru að spjalla saman um eitthvað verkefni. (Svo og þegar hann spyr um kommuna ![]()
Ég finn að ég stranda svolítið á tæknilegu útfærslunni á örvandi verkefnum. Þar sem að ég kenni hálfgerðan yfirlits-kúrs um hvaða aðferðir eru notaðar til fjarskipta, þá get ég ekki látið þau finna upp hjólið í hverri kennslustund. Það tók fólk tugi ára að finna upp alla þessa hluti!
Því verður samt ekki neitað að suma hluti er hægt að varpa “út í sal”, og að ég þarf að vera meira meðvituð um að líta eftir hentugu efni í svoleiðis pælingar.
Meðfram þessu óttast ég reyndar líka að það að taka heilar 15 mínútur í að leyfa krökkunum að glíma við eitthvað verkefni þýði að ég komist sjálf yfir minna ‘námsefni’. Þó má líklega færa fyrir því rök að þó maður hafi farið yfir ‘meira’ efni, þá sitji líklega minna eftir en ef ég hefði reynt að ‘virkja’ þau sjálf.
Ég tek svo undir að það er áhugavert að fólki gangi betur þegar það eru skýr kennslumarkmið sett fram, og hæfnisviðmið. Þar sem ég er að kenna kúrsinn í fyrsta sinn, þá vissi ég ekki hvað mér myndi þykja mikilvægast, en vonandi hef ég betri tilfinningu fyrir því næst!
2 Responses to Um myndina Teaching Teaching and Understanding Understanding