Í gær var ég komin með svæsna hálsbólgu, og varla talandi. Þá fór ég að íhuga hvort ég gæti mögulega fengið nemendurna til að tala um efni dagsins í dag. Það vildi svo heppilega til að þegar ég gerði upphaflega kennsluáætlun þá setti ég heldur lítið efni á þessa dagsetningu (án þess að gera mér grein fyrir því þá).
Ég byrjaði tímann á því að klára stutta umfjöllun um það sem ég hafði skilið eftir frá síðasta tíma (um 10 mín). Síðan baðst ég vægðar vegna raddarinnar, og skipti hópnum (10 manns) í þrjá hópa. Gaf hverjum hópi umræðuefni, vildi að þau veldu sér ritara, presenter, gagnaaflara og sagði að þau hefðu 15-20 mínútur til að undirbúa sig. Og já, þau mættu ólesin í tíma (úps).
Í raun fengu þau lengri tíma til að undirbúa sig, því allur fyrri tíminn (40 mín alls) fór í undirbúninginn, og eitthvað af frímínútunum líka. Síðan kom fyrsti hópur upp á töflu. Þau voru ekkert rosalega markviss en það tókst að toga út það sem skipti máli, og í raun þá leystu þau eitt vandamál sem ég hafði rekið mig á við minn eiginn lestur, en ekki nennt að ráða úr.
Næsti hópur hafði einbeitt sér að því að skilja hvernig ein ákveðin aðferð virkar, en þar sem það var flókið, þá höfðu þeir ekki náð skilja eða greina af hverju hún var notuð (kostir og gallar). Það hafðist þó að ná út meginpunktunum.
Þriðji hópurinn byggði síðan á því sem hópur tvö hafði gert, og gekk ágætlega að koma sínu til skila, þó að það hefði kannski ekki verið mjög mikið ‘flair’ í gangi. Helsta failið var að mér tókst ekki að tengja fartölvuna þeirra við skjávarpann – þannig að ég var annars hugar á meðan þau voru að presentera sitt – og ég bað þau um að endurtaka sig svolítið.
Allt í allt var samt ljóst að nemendurnir voru ekki vanir að “presentera”. Þau fengu of lítinn tíma til að undirbúa sig, og ég var ekki nógu markviss í að segja þeim hvað þau ætti að einbeita sér að. Það á sérstaklega við hóp númer tvö. Á móti kom hins vegar að ég þurfti að tala miklu minna, og var ennþá með rödd (nokkurn veginn) í lok tímans.
Ég spurði að lokum hvort þau vildu gera þetta aftur. Einhver þvert nei. Einn nemandi sagði að þetta gæti verið í lagi aftur ef það væri meiri undirbúningstími, sem ég skildi vel. Einnig kom fram það sjónarhorn einn nemandinn hefði verið í kúrsi þar sem “nemendur áttu að kenna nemendum” og að það hefði bara endað með ósköpum og verið almennt ‘slæmt’.
Persónulega fannst mér áhugavert hvernig hóparnir unnu mismunandi. Í einum hóp var mikið talað saman (þó mér sýnist einn nemandinn vera heldur þögull), í einum hóp lágu tveir í fartölvum (ég hafði sagt þeim að leita á netinu) á meðan annar las í bókinn (sem er ekki mjög góð um þetta efni) og svo var spjallað smá, og í þriðja hópnum kom strax upp verkaskipting þar sem hver ákvað að tala um einhvern ákveðinn þátt af því verkefni.
Í framtíðinni þarf ég að gefa meiri undirbúningstíma, og betri leiðbeiningar. Ég efast um að ég geri nákvæmlega þetta aftur (einu sinni á önn er ágætt), en þetta var ágætis tilbreyting.
2 Responses to Tilraunastarfssemi – Nemendur rannsaka og flytja efni dagsins