Sir Ken Robinson og sköpunargleðin

Eftirfarandi fyrirlestrar frá Sir Ken Robinson hafa vakið mig til umhugsunar um skólakerfið almennt. Í þeim vekur hann athygli á því að núverandi skólakerfi sé ekki endilega að undirbúa fólk undir komandi heim, heldur heiminn sem var. Hann gerir út því skóna að núverandi skólakerfi gangi að of miklu leyti út á ‘heilaleikfimi’ og bara ákveðna tegund af ‘heilaleikfimi’. Hann bendir líka á að skólakerfið eins og það er hannað í dag sé í raun að þjálfa fólk í að verða háskólaprófessorar!

Ég set hér inn þrjá af fyrirlestrum hans. Sá fyrsti er gríðarlega vel myndskreyttur, og hinir tveir eru frá tveimur mismunandi TED ráðstefnum.

This entry was posted in Efni frá nemendum, KEN212F, Vídeó and tagged . Bookmark the permalink.

One Response to Sir Ken Robinson og sköpunargleðin

Comments are closed.