[Innlegg á Moodle-umræðuvef námskeiðs.]
Ég er að kenna mitt fyrsta námskeið og hef því ekki neina reynslubrunna til að ausa úr!
Þessa fyrstu vikur hef ég upplifað mig sem leiðsögumann(konu). Ég tek við hópi af fólki og leiði hópinn um stræti borgar sem ég heimsótti sjálf síðast fyrir þó nokkru síðan, en hef þó heyrt minnst á í gegnum árin (þekki helstu túristagildrurnar, ef svo mætti segja!)
Ég leiði þau um hverfi sem hafa ákveðna tegund af “byggingum” og bendi á hvað byggingarnar eiga sameiginlegt, hvað er öðruvísi, og hvað mætti betur fara. Spyr spurninga og læt þau giska þar sem það á við.
Þegar eitt hverfi er þaulkannað, höldum við í næsta hverfi. Til að þau villist síður reyni ég ætíð að tengja ferðalagið saman með heildstæðri sögu og við þeirra daglega líf þar sem það á við. Síðan læt ég þau hafa þrautablað svo að þau gleymi ekki strax því sem við vorum að skoða – því ég veit að byggingarnar eiga það til að renna saman í eitt.
Ég vonast með þessu til að þau horfi öðruvísi á heiminn, geti greint hvernig sumir hlutar hans eru uppbyggður, og hverjir eru kostir og gallar á hinum ýmsu hönnunarákvörðunum – og geti nýtt sér þá þekkingu þegar þau sjálf þurfa að taka slíkar ákvarðanir þótt þær séu ekki beintengdar því sem við höfum skoðað.
Ég hef aldrei stundað neina aðra grein (fyrir utan þetta námskeið!), og þekki því hreinlega ekki til. Ég ímynda mér samt að hver deild kenni nemendum ákveðinn hugsunargang/lag og gefi nemendum sínum orðaforða (og önnur tól) til að tjá sig á ákveðinn hátt á sínu sviði og leysa/greina þannig vandamál/heiminn.
Ég get ekkert fullyrt um hvort tilgangur náms sé ólíkur eftir kennurum, en grunar að það sé líklega satt, því hver kennari hefur sína heimssýn/mynd sem hann varpar á nemandahópinn.
2 Responses to Starfskenning