Að þessu sinni hittumst við í húsakynnum Kennslumiðstöðvar í Íþróttahúsi HÍ við Sæmundargötu. Við byrjuðum tímann á smá rabbi, en síðan sýndi Guðrún afrakstur síðasta tíma, það er litlu kennslumyndböndin sem við höfðum búið til í síðasta tíma. Sigríður sýndi einnig eMission upptöku sem hún hafði tekið upp.
Borðunum hafði verið raðað saman fjórum og fjórum, og að sýningunni lokinni (og afskaplega góðum kaffiveitinum, takk Guðrún!) þá fórum við að bera saman kennsluáætlanir okkar.
Mín kennsluáætlun (sem ég dreifði til nemenda) var svona (fyrir utan að uppsetningin var aðeins önnur – vefsíðan á erfitt með að birta skjalið rétt):
==========================================
==========================================
Til hliðar við þessa kennsluáætlun var ég svo með aðra kennsluáætlun á töfluformi fyrir sjálfa mig sem var miklu nákvæmari varðandi námsyfirferðina. Hér er brot af töflunni:
| Dagur | Dagsetning | Efni | Bókin |
| Fimmtudagur | 26. ágúst 2010 | Inngangur, námskeið kynnt, almenn umræða um fjarskiptakerfi | Kafli 1 |
| Mánudagur | 30. ágúst 2010 | Fourier upprifjun, rect og sinc, tími vs. tíðni | Kaflar 2.1-2.3 |
| Fimmtudagur | 2. sept 2010 | Fourier upprifjun, delta fallið, orkumerki, aflmerki | Kaflar 2.4-2.9 |
| Mánudagur | 6. sept 2010 | Útslagsmótun, AM | Kaflar 3.1-3.3 |
Ég hafði ekki sjálfstraust í að láta nemendurna fá svona ítarlegt plagg, en kannski geri ég það næst, því að ég stóð nokkurn veginn við áætlunina. Reyndar er ég að hugsa um að breyta um bók, og þá veit ég ekki lengur hvort ég geti notað sömu áætlun. Það verður að koma í ljós!
Hafandi skoðað kennsluáætlanirnar sem hinar þátttakendurnir komu með, þá sé ég að það sem helst vantar á mína kennsluáætlun er
- Hæfnismarkmið!!
- Að segja hverju mörg heimadæmi verða allt í allt (ég vissi ekki fyrirfram hvort ég næði að standa við að gefa út 12 heimadæmi, en það hafðist)
- Að segja hversu mörg heimadæmi gilda til einkunnar (eftir grát og gnístur nemenda eftir sérstaklega erfið heimadæmi, þá enduðu það í 10 bestu af 12)
- Mögulega: ítarlegri listi yfir áætlaða námsyfirferð
Varðandi þær kennsluáætlanir sem ég sá, þá fannst mér sniðugt að Viðskiptafræðideild hafi staðlað form á kennsluáætlunum, svo að þær líta allar eins út fyrir alla kúrsa. Hver kennsluáætlun er þá með upplýsingar um 1) Markmið, 2) Kennslu, 3) Kennslubækur, 4) Fyrirkomulag kennslu, 5) Námsmat, 6) Yfirlit yfir fyrirlestra og efni.
Í tímalok var tekin mynd af öllum þátttakendunum – og svo hljóp ég út til að reyna að ná í úrlausnir nemenda á lokaprófinu sem ég hafði haldið um morguninn…!
Ég þakka kærlega fyrir mig! 🙂