[Innlegg á Moodle-umræðuvef námskeiðs.]
Ég hef persónulega mikinn áhuga á þröskuldshugtökum. Það kemur að vísu frá því að hjálpa hinum ýmsu fjölskyldumeðlimum með stærðfræði. Þar hef ég ítrekað rekið mig á að ákveðin hugtök hafa farið fyrir ofan garð og neðan og þar með ekki hægt að halda áfram (t.d. til hvers eru reiknireglur?)
Það er áhugavert að lesa um greiningu á þröskuldshugtökum, og greinin dregur fram marga áhugaverða punkta. Mér fannst hjálplegt að vita að hvert einasta atriði er ekki ‘þröskuldshugtak’, til dæmis það að þyngdarlögmálið teljist þröskuldshugtak, en ekki þyngdarmiðja hlutar.
Sjálf er ég að reyna að gera mér grein fyrir þröskuldshugtökunum í mínum eigin kúrsi, en grunar að það komi ekki almennilega í ljós fyrr en eftir miðsvetrarprófið. Þó hef ég rekið mig á áhugaverða punkta, en hef ekki náð að taka þá almennilega saman ennþá.
One Response to Þröskuldshugtök