{"id":789,"date":"2006-05-03T22:42:00","date_gmt":"2006-05-03T22:42:00","guid":{"rendered":"http:\/\/finnur.net\/blog\/?p=789"},"modified":"2006-05-03T22:42:00","modified_gmt":"2006-05-03T22:42:00","slug":"789","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/2006\/05\/789\/","title":{"rendered":""},"content":{"rendered":"<h3>Mi\u00f0vikudagur 3. ma\u00ed 2006<\/h3>\n<p><strong>Lj\u00faft l\u00edf<\/strong><br \/>Mi\u00f0viku-fr\u00ed-dagur n\u00famer tv\u00f6.  Morguninn var busy, busy.  Vi\u00f0 keyr\u00f0um Finn \u00ed vinnuna og svo yfir fl\u00f3ann til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed \u00edslenskan fisk fr\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.icelandic.com\">Icelandic.com<\/a> \u00ed st\u00f3ra frystigeymslu \u00ed austurfl\u00f3anum.  Anna S\u00f3lr\u00fan var hrifin af \u00f6llum litlu rafmagns-lyfturunum sem \u00feutu fram og til baka, sumir meiri a\u00f0 segja aftur-\u00e1-bak! \ud83d\ude42  <\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 fiskurinn (\u00f6ll 20 kg) var kominn \u00ed skotti\u00f0 \u00feutum vi\u00f0 heim til a\u00f0 skutla honum \u00ed frystinn &#8211; og \u00feutum svo \u00fat \u00ed b\u00edl aftur til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed Finn og skutla honum til handa-l\u00e6knisins alveg \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu!  Finnur hefur sem sagt veri\u00f0 \u00ed me\u00f0fer\u00f0 hj\u00e1 &#8220;physical therapist&#8221; \u00fat af sinab\u00f3lgu (enska: <a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Tendonitis\">tendonitis<\/a>) \u00ed h\u00f6ndunum sem er algengur atvinnusj\u00fakd\u00f3mur hj\u00e1 t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0ingum.  Eftir \u00e1tta vikur af me\u00f0fer\u00f0 hefur honum fari\u00f0 miki\u00f0 fram en \u00fea\u00f0 er enn\u00fe\u00e1 eitthva\u00f0 eftir sem \u00fearf a\u00f0 vinna \u00e1.  L\u00e6knirinn gaf honum \u00fev\u00ed upp\u00e1skrift \u00e1 fj\u00f3rar vikur \u00ed vi\u00f0b\u00f3t af me\u00f0fer\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1 me\u00f0an Finnur l\u00e9t k\u00edkja \u00e1 sig f\u00f3rum vi\u00f0 m\u00e6\u00f0gur \u00ed <a href=\"http:\/\/www.wholefoods.com\">Whole Foods<\/a> og eyddum mor\u00f0 fj\u00e1r \u00ed lj\u00faffenga eiturefnalausa \u00e1vexti, gr\u00e6nmeti og horm\u00f3na-og s\u00fdklalyfjalaust kj\u00f6t.  Eftir matarkaupin f\u00f3rum vi\u00f0 heim, Finnur keyr\u00f0i \u00ed vinnuna og vi\u00f0 m\u00e6\u00f0gur fengum okkur h\u00e1degismat og l\u00far\u00f0um svo \u00ed t\u00e6pa tvo t\u00edma.  Eftir sm\u00e1 snarl f\u00f3rum vi\u00f0 \u00fat og komumst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 gusta\u00f0i k\u00f6ldu \u00fati svo vi\u00f0 heims\u00f3ttum Ingvar Atla.  Eftir \u00edslenskan \u00feorsk \u00ed kv\u00f6ldmat sj\u00f3nv\u00f6rpu\u00f0umst vi\u00f0 og n\u00fana er <a href=\"http:\/\/imdb.com\/title\/tt0433383\/\">Good Night and Good Luck<\/a> \u00e1 dularfullu sk\u00f3last\u00f6\u00f0inni.<\/p>\n<p>Talandi um f\u00f3lk sem talar \u00e1 m\u00f3ti opinberum yfirv\u00f6ldum.  Um helgina var haldi\u00f0 ball \u00ed h\u00f6fu\u00f0borg Bandar\u00edkjanna \u00fear sem fr\u00e9ttamenn kl\u00f6ppu\u00f0u s\u00e9r \u00e1 baki\u00f0 og forsetinn sj\u00e1lfur m\u00e6tti til a\u00f0 gera g\u00f3\u00f0l\u00e1tlegt gr\u00edn a\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e6ta me\u00f0 eftirhermu sem sag\u00f0i \u00fea\u00f0 sem forsetinn var &#8220;raunverulega&#8221; a\u00f0 hugsa.  \u00deetta atri\u00f0i f\u00e9kk mikla athygli fr\u00e1 fr\u00e9ttami\u00f0lunum sem eru v\u00edst b\u00fanir a\u00f0 spila \u00feetta atri\u00f0i oft og m\u00f6rgum sinnum s\u00ed\u00f0an \u00e1 sunnudaginn.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0.  \u00dea\u00f0 er v\u00edst hef\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0a &#8220;gr\u00ednista&#8221; til a\u00f0 flytja lokar\u00e6\u00f0u kv\u00f6ldins og \u00ed \u00e1r var\u00f0 <a href=\"http:\/\/imdb.com\/name\/nm0170306\/\">Stephen Colbert<\/a> fyrir valinu.  Stephen \u00feessi Colbert (sem er bori\u00f0 fr\u00e1 &#8220;Kol-behr&#8230;&#8221;) var &#8220;fr\u00e9ttama\u00f0ur&#8221; \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.comedycentral.com\/shows\/the_daily_show\/index.jhtml\">The Daily Show with Jon Stewart<\/a> en f\u00e9kk n\u00fdveri\u00f0 sinn eiginn \u00fe\u00e1tt, <a href=\"http:\/\/www.comedycentral.com\/shows\/the_colbert_report\/index.jhtml\">The Colbert Report<\/a> (bori\u00f0 fram Kol-behr Rap-pohr) \u00fear sem hann flytur &#8220;fr\u00e9ttir&#8221; \u00ed ham h\u00e6grisinna\u00f0s \u00fe\u00e1ttastj\u00f3rnanda (eins og <a href=\"http:\/\/www.billoreilly.com\/\">Bill O&#8217;Reilly<\/a> &#8211; hrrrollur!) sem veit allt best &#8211; en er \u00ed raun afskaplega f\u00e1fr\u00f3\u00f0ur.  Eins og hann sag\u00f0i svo vel \u00ed fyrsta \u00fe\u00e6ttinum &#8211; &#8220;I won&#8217;t read the news to you, I&#8217;ll feel them at you&#8221;.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra af hverju vi\u00f0 h\u00e9rna \u00ed Bandar\u00edkjnum erum svona hrifin af Daily Show-inu og svo Colbert Report (\u00feegar vi\u00f0 h\u00f6fum t\u00edma til a\u00f0 k\u00edkja \u00e1 \u00fea\u00f0) &#8211; en \u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e9rna eru engar _alv\u00f6ru_ fr\u00e9ttir.  Fr\u00e9ttat\u00edmarnir \u00ed sj\u00f3nvarpinu eru brandari.  \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 horfa \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 eru endalaus augl\u00fdsingahl\u00e9, og \u00ed \u00feokkab\u00f3t \u00fe\u00e1 l\u00edmast fr\u00e9ttastofurnar vi\u00f0 einhverja eina s\u00f6gu og gj\u00f6rsamlega myr\u00f0a hana \u00e1 me\u00f0an margt anna\u00f0 (eiginlega allt anna\u00f0) er l\u00e1ti\u00f0 \u00f3sagt.  N\u00fana er l\u00edka b\u00fai\u00f0 a\u00f0 gefa \u00f6llum \u00feeim sem flytja &#8220;fr\u00e9ttir&#8221; leyfi til a\u00f0 skj\u00f3ta inn pers\u00f3nulegum kommentum sem eru fullkomlega \u00f3vi\u00f0eigandi og \u00f3endanlega pirrandi.<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0an er sem sagt s\u00fa a\u00f0 vi\u00f0 horfum aldrei \u00e1 &#8220;fr\u00e9ttat\u00edma&#8221; h\u00e9rna \u00fati, vi\u00f0 lesum \u00ed sta\u00f0inn bl\u00f6\u00f0in \u00e1 netinu &#8211; og horfum alltaf \u00e1 Daily Show \u00fev\u00ed \u00feeir safna saman \u00fev\u00ed helsta og s\u00fdna \u00fea\u00f0, bara \u00ed fyndinni umgj\u00f6r\u00f0 sem leyfir \u00feeim a\u00f0 segja hluti sem a\u00f0rir segja ekki.  Vi\u00f0 horfum sjaldnar \u00e1 Colbert Report, \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3 hann flytji \u00feannig s\u00e9\u00f0 stundum fr\u00e9ttir, \u00fe\u00e1 er Colbert karakter (Jon Stewart er bara Jon Stewart) og \u00fe\u00e6ttirnir eru \u00f3jafnari.  Vi\u00f0t\u00f6lin hans Colbert eru samt st\u00f3rkostleg \u00fev\u00ed hann kemst upp me\u00f0 a\u00f0 spyrja \u00f3tr\u00falegra spurninga bara \u00ed gervi \u00feess sem heldur a\u00f0 hann viti allt &#8211; \u00e1 me\u00f0an hinn raunverulegi Stephen Colbert er \u00ed raun mj\u00f6g fr\u00f3\u00f0ur, og vinstrisinna\u00f0ur \u00ed \u00feokkab\u00f3t.<\/p>\n<p>Ok, n\u00f3g um \u00fea\u00f0.  Vi\u00f0 erum sem sagt a\u00f0d\u00e1endur.  \u00dea\u00f0 kom \u00fev\u00ed \u00e1 \u00f3vart \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 k\u00edkja \u00e1 fr\u00e9ttirnar eftir helgina og hvergi var minnst einu or\u00f0i \u00e1 Stephen Colbert.  Fr\u00e9ttami\u00f0larnir voru sem fyrr fullir af forseta-atri\u00f0inu, og h\u00e9r og \u00fear var l\u00edtil m\u00e1lsgrein ne\u00f0st um a\u00f0 Stephen Colbert hef\u00f0i ekki vaki\u00f0 k\u00e1t\u00ednu hj\u00e1 forsetahj\u00f3nunum og\/e\u00f0a ekki veri\u00f0 mj\u00f6g fyndinn yfir h\u00f6fu\u00f0.  \u00deetta vakti forvitni m\u00edna og \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 leita \u00e1 netinu a\u00f0 frekari fr\u00e9ttum.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 skal segja.  Vefurinn var upplj\u00f3ma\u00f0ur af f\u00f3lki sem h\u00e9lt ekki vatni yfir honum &#8211; og allir voru jafnundrandi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hvergi nokkurs sta\u00f0ar var neitt a\u00f0 &#8220;opinberlega&#8221; a\u00f0 fr\u00e9tta.  Eftir nokkra leit fann \u00e9g <a href=\"http:\/\/dailykos.com\/storyonly\/2006\/4\/30\/1441\/59811\">texta<\/a> af r\u00e6\u00f0unni og svo loksins <a href=\"http:\/\/salon.com\/ent\/video_dog\/politics\/2006\/04\/30\/colbert_press\/index.html\">v\u00edde\u00f3<\/a> (l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 leita \u00e1 \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.ifilm.com\/\">ifilm.com<\/a>) af drengum og oh, boy&#8230;  \u00dev\u00edl\u00edk \u00e1g\u00e6tis rassskelling fyrir forsetann og alla hir\u00f0ina sem var samankomin \u00ed salnum!  Hann var kannski ekki svo &#8220;haha-fyndinn&#8221;, en \u00e9g \u00e1 eftir a\u00f0 kv\u00f3ta frasa \u00far \u00feessari r\u00e6\u00f0u n\u00e6stu \u00e1rin&#8230; \ud83d\ude42<\/p>\n<p>Til a\u00f0 \u00feakka fyrir okkur \u00fe\u00e1 er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 setja upp <a href=\"http:\/\/thankyoustephencolbert.org\/wordpress\/archives\/3#comments\">Thank you Stephen Colbert<\/a> s\u00ed\u00f0u, sem var s\u00ed\u00f0ast \u00feegar \u00e9g k\u00edkti komin \u00ed 42000 undirskriftir (\u00e9g var um #8000 \u00e1 m\u00e1nudaginn&#8230; \ud83d\ude42<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttami\u00f0larnir eru h\u00e6gt og r\u00f3lega a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6rsamlega misstu af \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0urinn var ekki a\u00f0 segja brandara fyrir \u00fe\u00e1 sem voru \u00ed salnum, heldur \u00fe\u00e1 sem s\u00e1tu heima &#8211; og hann hitti \u00fev\u00edl\u00edkt \u00ed mark &#8211; s\u00e9rstaklega me\u00f0 forsetann _vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 s\u00e9r_!!.  <a href=\"http:\/\/www.nytimes.com\/\">New York Times<\/a> sem missti algj\u00f6rlega af \u00feessu reyndi a\u00f0 b\u00e6ta fyrir blindnina me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 flytja fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed a\u00f0 netheimar hef\u00f0u gj\u00f6rsamlega misst viti\u00f0 yfir manninum og margar vefs\u00ed\u00f0ur flytja fr\u00e9ttir af mestu traff\u00edk s\u00ed\u00f0an kosningarnar voru, e\u00f0a fangapyntingaskandalinn.<\/p>\n<p>\u00deannig eru Bandar\u00edkin \u00ed dag&#8230; \ud83d\ude42<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mi\u00f0vikudagur 3. ma\u00ed 2006 Lj\u00faft l\u00edfMi\u00f0viku-fr\u00ed-dagur n\u00famer tv\u00f6. Morguninn var busy, busy. Vi\u00f0 keyr\u00f0um Finn \u00ed vinnuna og svo yfir fl\u00f3ann til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed \u00edslenskan fisk fr\u00e1 Icelandic.com \u00ed st\u00f3ra frystigeymslu \u00ed austurfl\u00f3anum. Anna S\u00f3lr\u00fan var hrifin af \u00f6llum litlu rafmagns-lyfturunum sem \u00feutu fram og til baka, sumir meiri a\u00f0 segja aftur-\u00e1-bak! \ud83d\ude42 Eftir<a class=\"button\" href=\"https:\/\/hrefna.com\/blog\/2006\/05\/789\/\" title=\"Read More\">Read more<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-789","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","post-container col-md-12"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/789","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=789"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/789\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=789"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=789"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=789"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}