{"id":1583,"date":"2001-11-29T23:06:00","date_gmt":"2001-11-29T23:06:00","guid":{"rendered":"http:\/\/finnur.net\/blog\/?p=1583"},"modified":"2001-11-29T23:06:00","modified_gmt":"2001-11-29T23:06:00","slug":"1583","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/2001\/11\/1583\/","title":{"rendered":""},"content":{"rendered":"<p><b>G\u00f3\u00f0ir far\u00feegar, \u00feetta er Finnur sem talar&#8230; \ud83d\ude42<\/b><\/p>\n<p>M\u00e9r var g\u00f3\u00f0l\u00e1tlega bent \u00e1 \u00fea\u00f0 n\u00fdlega a\u00f0 f\u00f3lk hef\u00f0i litla hugmynd um hva\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 gera h\u00e9r \u00ed Kaliforn\u00edu \u00fear sem \u00fea\u00f0 heyr\u00f0ist svo l\u00edti\u00f0 fr\u00e1 m\u00e9r (\u00e1 vefnum) \ud83d\ude42 \u00deetta er \u00fev\u00ed tilraun til a\u00f0 b\u00e6ta \u00far. \ud83d\ude42<\/p>\n<p>N\u00fa, fyrir \u00fe\u00e1 sem ekki vita \u00fea\u00f0 (og \u00fea\u00f0 eru allt of margir farnir a\u00f0 lesa dagb\u00e6kurnar okkar) \ud83d\ude42 \u00fe\u00e1 er \u00e9g a\u00f0 vinna sem forritari \u00ed 12 manna hugb\u00fana\u00f0arfyrirt\u00e6ki sem heitir GreenBorder og er sta\u00f0sett sy\u00f0st \u00ed Mountain View. \u00c9g m\u00e1 v\u00edst l\u00edti\u00f0 segja um hva\u00f0 \u00e9g er a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega, \u00fear sem \u00feetta er allt saman &#8220;off the record, on the QT, and very hush-hush&#8221;. \ud83d\ude42<\/p>\n<p>\u00c9g get hins vegar sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g h\u00e9lt \u00e9g myndi (\u00ed bandar\u00edsku fyrirt\u00e6ki) kynnast \u00fev\u00ed hvernig v\u00e6ri a\u00f0 vinna me\u00f0 k\u00f6num en svo kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 ma\u00f0ur er n\u00e1nast bara a\u00f0 vinna me\u00f0 As\u00edub\u00faum&#8230; Kanarnir eru \u00ed jafn miklum minnihluta og \u00cdslendingarnir \u00ed fyrirt\u00e6kinu, sem erum \u00e9g og \u00dalfar (CTO) &#8211; restin eru Indverjar (pl\u00fas einn Breti, R\u00fameni, K\u00ednverji og Japani)&#8230; \ud83d\ude42<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fe\u00f3 skratti gaman, ma\u00f0ur hefur fr\u00e1 upphafi veri\u00f0 me\u00f0 fingurna \u00ed \u00f6llu eins og gengur og gerist me\u00f0 start-up fyrirt\u00e6ki og allir eru mj\u00f6g \u00e1hugasamir um a\u00f0 kynna menningu heimalands s\u00edns sem eykur \u00e1 \u00e1n\u00e6gjuna. \u00dalfar kom einu sinni me\u00f0 k\u00falus\u00fakk sem vakti hrifningu og \u00e9g kom um daginn me\u00f0 (af\u00e9tinn) svi\u00f0akjamma \u00ed vinnuna og s\u00fdndi (\u00fear sem f\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i litla tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6tum svi\u00f0ahausa \u00e1 \u00cdslandi). \u00c9g l\u00fdg \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i vilja\u00f0 festa \u00e1 mynd skelfingarsvipinn \u00e1 h\u00f6r\u00f0ustu gr\u00e6nmetis\u00e6tunni \u00ed h\u00f3pnum \u00feegar \u00e9g s\u00fdndi beini\u00f0!! \ud83d\ude42 \ud83d\ude42<\/p>\n<p>\u00c9g lag\u00f0i (hreinan) kjammann \u00e1 minnisblokkina hennar og t\u00f3k svo eftir \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ar a\u00f0 h\u00fan var a\u00f0 laumulega a\u00f0 afrita minnisatri\u00f0in af bla\u00f0inu yfir \u00e1 anna\u00f0 bla\u00f0 og h\u00e9lt svo \u00ed horni\u00f0 \u00e1 &#8220;smita\u00f0a&#8221; bla\u00f0inu og henti \u00fev\u00ed \u00ed papp\u00edrst\u00e6tarann!! (gr\u00ednlaust) \ud83d\ude42 \ud83d\ude42<\/p>\n<p><b>Hva\u00f0 er svo anna\u00f0 a\u00f0 fr\u00e9tta?<\/b><\/p>\n<p>Humm&#8230; Fyrir utan LA fer\u00f0ina sem er myndskreytt \u00e1 dagb\u00f3k n\u00famer 1 og ekki \u00e6tlunin a\u00f0 fara n\u00e1nar \u00fat \u00ed h\u00e9r, \u00fe\u00e1 er kannski helst a\u00f0 fr\u00e9tta a\u00f0 \u00e9g vann tvo st\u00f3ra sigra gegn skrifr\u00e6\u00f0inu h\u00e9r \u00ed Bandar\u00edkjunum um daginn og er mj\u00f6g stoltur af&#8230;<\/p>\n<p>Fyrri sigurinn var gegn bandar\u00edskum &#8220;handrukkara&#8221; sem (til a\u00f0 gera langa s\u00f6gu stutta) \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 rukka mig um t\u00e6pa 700 dollara (t\u00e6par 70.000 \u00cdSK) fyrir a\u00f0 hafa stoli\u00f0 U-Haul trukk um \u00fea\u00f0 leyti \u00feegar hry\u00f0juverka\u00e1r\u00e1sin var ger\u00f0 11. september!!!! \u00c9g haf\u00f0i nefnilega leigt U-Haul trukk \u00ed Berkeley 8. sept og be\u00f0i\u00f0 um a\u00f0 skila honum \u00ed U-Haul \u00ed Mountain View (svakalega fl\u00f3ki\u00f0). \u00dea\u00f0 haf\u00f0i \u00fe\u00f3 eitthva\u00f0 skolast til \u00ed kollinum \u00e1 konunni sem afgreiddi mig sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00ed \u00e1tta daga vissu \u00feeir \u00ed Berkeley ekkert hvar trukkurinn var (\u00fe\u00f3 hann st\u00e6\u00f0i \u00e1 planinu hj\u00e1 U-Haul \u00ed Mountain View) og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u s\u00ed\u00f0an stuttu s\u00ed\u00f0ar tilkynnt hann sem stolinn!! Og til a\u00f0 b\u00e6ta gr\u00e1u ofan \u00e1 svart \u00fe\u00e1 var \u00feetta \u00ed kringum 11. september \u00feannig a\u00f0 ekki v\u00e6nkast hagur Strympu!<\/p>\n<p>\u00c1tta d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar fundu \u00feeir trukkinn \u00e1 planinu hj\u00e1 s\u00e9r og rukku\u00f0u mig um \u00e1tta daga leigu (!), skemmdir (!), refsigjald (!) fyrir a\u00f0 skila ekki \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma og alls konar rugl, samtals t\u00e6par 70 \u00fe\u00fasund!!! \u00c9g skrifa\u00f0i \u00feeim \u00fev\u00ed formlegt br\u00e9f \u00fear sem \u00e9g greindi \u00feeim kurteisislega fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki \u00ed lagi me\u00f0 kollinn \u00e1 \u00feeim, v\u00edsa\u00f0i \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ing og sag\u00f0ist vera tilb\u00fainn a\u00f0 f\u00e6ra r\u00f6k fyrir m\u00e1li m\u00ednu fyrir r\u00e9tti, ef \u00feyrfti. \u00dea\u00f0 er skemmst fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 \u00feeir s\u00e1u a\u00f0 s\u00e9r&#8230;<\/p>\n<p><b>Seinni sigurinn<\/b><\/p>\n<p>Seinni sigurinn var gegn innflytjendaeftirlitinu (INS) sem \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 taka s\u00e9r \u00f3heyrilega langan t\u00edma til a\u00f0 afgrei\u00f0a endurn\u00fdjun \u00e1 atvinnuleyfinu m\u00ednu, sem rann \u00fat 17. september.<\/p>\n<p>\u00c9g bei\u00f0 \u00ed 2 og 1\/2 t\u00edma \u00e1 m\u00e1nudegi til \u00feess eins a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vita a\u00f0 \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 koma aftur daginn eftir (d\u00f3h!). \u00deannig a\u00f0 \u00e9g vakna\u00f0i kl. 5:30 a\u00f0fararn\u00f3tt \u00feri\u00f0judags til a\u00f0 geta veri\u00f0 m\u00e6ttur \u00feegar skrifstofan opnar (kl. 7:00). A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u n\u00e1\u00f0i bi\u00f0r\u00f6\u00f0in \u00fe\u00e1 \u00fat \u00e1 g\u00f6tu (d\u00f3h!) og \u00fea\u00f0 t\u00f3k annan 2 og 1\/2 t\u00edma bara a\u00f0 f\u00e1 afgrei\u00f0slun\u00famer (eins og \u00ed bakar\u00edinu)! Og \u00fea\u00f0 sem verra var, \u00e1 mi\u00f0anum st\u00f3\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0t\u00edminn eftir afgrei\u00f0slu v\u00e6ri 6 KLUKKUSTUNDIR!!! D\u00f3h! \u00c9g reikna\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00fat a\u00f0 \u00e9g fengi afgrei\u00f0slu 15 m\u00edn\u00fatum eftir lokum! D\u00d3H! \ud83d\ude42<\/p>\n<p>\u00c9g f\u00f3r \u00fev\u00ed og kom aftur r\u00e9tt fyrir lokun og merkilegt nokk \u00fe\u00e1 n\u00e1\u00f0u \u00feeir a\u00f0 afgrei\u00f0a mig \u00e1\u00f0ur en \u00feeir loku\u00f0u \u00feannig a\u00f0 \u00e9g gekk \u00fat gla\u00f0ur \u00ed brag\u00f0i me\u00f0 korti\u00f0 \u00ed h\u00f6ndunum! \ud83d\ude42<\/p>\n<p>Tveir mikilv\u00e6gir sigrar gegn skrifr\u00e6\u00f0inu \u00ed h\u00f6fn, svona r\u00e9tt fyrir Thanksgiving. \u00c9g haf\u00f0i \u00fev\u00ed margt til a\u00f0 vera \u00feakkl\u00e1tur fyrir \u00fe\u00e1 helgina! \ud83d\ude42<\/p>\n<p>\u00c9g hef hins vegar \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed hva\u00f0 svona rugl vir\u00f0ist elta mig \u00e1 r\u00f6ndum, elstu menn muna kannski eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 DMV h\u00f3ta\u00f0i a\u00f0 setja\u00f6kusk\u00edrteini\u00f0 mitt \u00e1 &#8220;hold&#8221; \u00fear sem \u00e9g skulda\u00f0i me\u00f0lag!! \ud83d\ude42 \ud83d\ude42<\/p>\n<p>\u00c9g var \u00fev\u00ed or\u00f0inn \u00fea\u00f0 sem \u00feeir kalla &#8220;dead-beat dad&#8221;&#8230; \ud83d\ude42<br \/><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>G\u00f3\u00f0ir far\u00feegar, \u00feetta er Finnur sem talar&#8230; \ud83d\ude42 M\u00e9r var g\u00f3\u00f0l\u00e1tlega bent \u00e1 \u00fea\u00f0 n\u00fdlega a\u00f0 f\u00f3lk hef\u00f0i litla hugmynd um hva\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 gera h\u00e9r \u00ed Kaliforn\u00edu \u00fear sem \u00fea\u00f0 heyr\u00f0ist svo l\u00edti\u00f0 fr\u00e1 m\u00e9r (\u00e1 vefnum) \ud83d\ude42 \u00deetta er \u00fev\u00ed tilraun til a\u00f0 b\u00e6ta \u00far. \ud83d\ude42 N\u00fa, fyrir \u00fe\u00e1 sem ekki vita<a class=\"button\" href=\"https:\/\/hrefna.com\/blog\/2001\/11\/1583\/\" title=\"Read More\">Read more<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-1583","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized","post-container col-md-12"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1583","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1583"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1583\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1583"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1583"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrefna.com\/blog\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1583"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}