Morgunmyndir
Systkinin í morgunsárið, rétt áður en Anna og Finnur fóru. Bjarki að borða morgunmat #2. Bjarki kominn í leikskólafötin eftir morgunlúrinn.Read more
Systkinin í morgunsárið, rétt áður en Anna og Finnur fóru. Bjarki að borða morgunmat #2. Bjarki kominn í leikskólafötin eftir morgunlúrinn.Read more
Í dag er liðið eitt ár frá því að Bjarki kom heim af spítalanum. Þá má segja að tíminn hafi flogið frá síðan þá, og er það vel. Ef ég hefði verið skipulögð hefði ég tekið af honum mynd Í DAG, en það verður að bíða fram á morgun. Annars er gúrkutíð hjá okkur núna.Read more
Það var hljóðið sem vikan gaf frá sér. Hún bara hljóp frá, eins og reyndar allar aðrar vikur undanfarna mánuði. Það gerðist fátt merkilegt, við vöknuðum, Finnur og Anna fóru út úr húsi, ég og Bjarki lögðum okkur, fórum svo út úr húsi á hádegi, ég lamdi höfðinu við tölvuskjáinn, Finnur náði í krakkana áRead more
Fyrir um mánuði síðan kynntum við okkur fyrir fjölskyldunni sem býr í fjarlægari partinu á tvíbýlishúsinu við hliðina á okkur. Við rákumst á þau þar sem þau voru með krakkana úti á götu að hjóla. Þá kom í ljós að eldri strákurinn þeirra er nákvæmlega jafngamall og Anna og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar.Read more
Finnur tók að sér miðnætti-til-5-um-morguninn vaktina seint í síðustu viku með vatnspela að vopni og ég flutti yfir í Önnu-rúm. Þó svo að Bjarki væri í öðru herbergi og ég heyrði ekkert í honum, þá kom í ljós að ég var alltaf að vakna og yfirleitt af undarlegum draumum. Ég virðist því þurfa að læraRead more
Eins og ég minntist á í síðasta pósti, þá hef ég verið “annars hugar” undanfarið, nánar tiltekið í viku. Þetta annarlega hugarástand lýsir sér með því að ég gjörsamlega kolfell fyrir einhverju (yfirleitt bók/sjónvarpsþætti/bíómynd/tónlist) og vil helst bara vera ein í heiminum og horfa/hlusta/lesa, sama hvað klukkan er. Þetta gerist af og til – égRead more
Jæja, eru ekki allir búnir að prófa krómið? 🙂 Það hefur verið lítið um blogg undanfarna viku, ég er búin að vera annars hugar og “inn-á-við” en ekki “út-á-við” eins og venjulega. Hér er það helsta: * Það var hitabylgja alla síðustu viku, með um og yfir 30 stiga hita á hverjum degi. Ekki gamanRead more
Jæja, þá er leyndinni aflétt! Ég má loksins segja frá því sem ég er að vinna að, því að fyrsta beta útgáfan er komin út! Þungu fargi af mér létt! Ég er sem sagt að vinna í Króminu (nýja vefráparanum fyrir Windows XP og Vista). Fyrir þá sem hafa áhuga þá hef ég leitað eftirRead more
Hér er þriggja daga helgi að ljúka en það var frídagur verkalýðsins á mánudegi. Ég tók stuttan blund með Bjarka á sunnudagsmorgninum og átti mér einskis ills von þegar ég fór niður með hann eftir blundinn en þá fann ég lista á eldhúsborðinu yfir allt sem hefur setið á hakanum undanfarna tvo og hálfan mánuðRead more
Það er þriggja daga helgi núna því verkalýðsdagurinn er á mánudaginn. Við erum ekki með nein stórkostleg plön önnur en að taka því sæmilega rólega. Mestu “átök” dagins voru að ég stóð loksins við stóru orðin og fór í sund á meðan Anna var í sundtíma. Það er 25 metra laug við hliðina á kennslulauginniRead more
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |