32 ára að íslenskum tíma!
Víííí, ég er orðin 32 ára, að íslenskum tíma amk. Vantar nokkrar klukkustundir í það hérna úti, en læt það ekki á mig fá! 🙂Read more
Víííí, ég er orðin 32 ára, að íslenskum tíma amk. Vantar nokkrar klukkustundir í það hérna úti, en læt það ekki á mig fá! 🙂Read more
Mikið skólastand í dag. Við hittum kennarann hans Bjarka í klst eftir hádegi til að fara yfir þroskamatið hans og tala um hvernig honum gengur og stilla almennt saman strengi. Ágætis fundur og kennarinn hafði ekkert nema gott að segja um Bjarka. Vonandi sendir hún okkur smá fundaryfirlit, því ég man ekki nákvæmlega hvað húnRead more
Rúmlega fjögur í dag mættum við Finnur á foreldrafund í bekk Bjarka. Hann var með óvenjulegu sniði, og greinilegt að það var verið að prófa eitthvað nýtt. Kennararnir þrír höfðu sum sé hóað í allar fjölskyldunar sjö og beðið okkur um að hittast í “margnota-herberginu”, sem er stórt rými notað fyrir kynningar, viðgerðir, geymslu o.s.frv.Read more
Ég er að vinna með ansi skemmtilegum rússa. Ég hitti á hann við vatnskælinn þar sem hann var að hella sér vatn í krús með rauðlituðum vökva í. Hann útskýrði fyrir mér að hann væri að blanda vatni út í ávaxtasafa. “Já, ertu með svona þykkni?” spurði ég.“Nei”, svaraði hann og kímdi, “ég er baraRead more
Ég fór að leika mér í Google Analytics um daginn og leit yfir farinn veg á árinu 2008 sem var að líða. Skemmti mér svo við að læra á Google Chart API til að birta gröf af niðurstöðunum á vefnum. Afraksturinn er hér að neðan (allar tölur eru fyrir árið 2008 nema annað sé tekiðRead more
Sunnudagskvöld komið, óskarinn búinn og tími til að gera upp helgina. Föstudagur Hápunktur dagsins var saumaklúbbur um kvöldið hjá Margréti í Palo Alto. Fámennt en góðmennt eins og maður segir og veitingarnar æði. Laugardagur Eftir mæðgna-sund var borðaður hádegismatur í Ikea, við skruppum í Carter’s barnafatabúðina og svo í Heilu Búðina. Síðan héldum við öllRead more
Fimmtudagur til… fjörs!?! Sit fyrir framan tölvuna eilítið sveitt því að ég var að “dansa” á dansmottunni í kvöld. Huh, hvað þýðir það?!? Jú, við eigum nefnilega dans-tölvuleik og stóra tölvumottu með stórum örvum. Leikurinn gengur út á að stíga á réttar örvar í takt við lög. Á ex-boxinu kallast leikurinn Dance Dance Revolution, eðaRead more
Merkilegheit dagsins voru að Bjarki tók (óvart) þrjú skref óstuddur í morgun. Nú er að sjá hvenær hann kemur til með að endurtaka leikinn. Á morgun? Eftir viku? Mánuð? Óþolinmóð móðir? Ó, já! Í dag var miðvikudagur svo að ég mætti á hópfund að vanda í hádeginu. Eftir fundinn skilaði ég af mér (heldur stuttu)Read more
Þriðjudagur… Almennur vinnudagur en ekki “heimadagur” eins og við Anna Sólrún köllum það þegar frí er í leikskólanum. Annars alltaf skrýtnar þessar fjögurra daga vinnuvikur – þær líða eitthvað svo hratt. Bara verst að þriggja daga helgarnar líða fjórum sinnum hraðar. :s Anna Sólrún þarf greinilega minni svefn þessa dagana. Áður fyrr hrundi hún íRead more
Það var frí á leikskólanum í dag og í vinnunni hjá Finni út af “forsetadeginum”. Við eyddum fyrri partinum af deginum heima, en fórum svo til Arnars og Sólveigar um þrjúleytið og hittum þar líka Siggu, Mario og Kötlu. Krakkarnir léku sér vel og vandlega saman á meðan fullorðna fólkið spjallaði. Sólveig eldaði rosa fínanRead more
| S | M | T | W | T | F | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | ||||