Mánudagur 27. september 2004
Barnafréttir
Þetta eru nú eiginlega gamlar fréttir – en hún Hjördís rafmagnsgella eignaðist son númer tvö, hann Bjarna, núna um daginn og fór létt með það!! Til hamingju með það kærlega Hjördís, Haukur og Arnar stóribróðir! 🙂 🙂
Af okkur er annars lítið að frétta, laugardeginum eyddum við hjá Guðrúnu og Snorra en Snorri varð 35 ára þann daginn og þar með “middle-aged” samkvæmt einhverri blaðafyrirsögninni. Hann tók því eins og maður. 🙂 Sunnudeginum eyddum við heima og Anna æfði sig í að standa upp “frá grunni” það er með því að rísa upp án þess að styðja sig við eitt eða neitt. Þetta er allt að koma hjá henni!
Núna er hún hins vegar eitthvað ósátt við lífið – grætur eins og maginn/tennurnar/eyrun/eitthvað sé ekki alveg eins og það á að vera. Best að fara að huga að henni…