2005-07-15Uncategorized Standard
Föstudagur 15. júlí 2005
Fastari skorður
Anna litla fór á leikskólann eftir hádegi í gær, og það var óneitanlega ágætt að vera heima í rólegheitunum aftur. Hún er öll að koma til, en er ennþá örlítið lystarlaus (maginn hefur líklega skroppið saman) og eitthvað kraftlaus. Hér er ennþá það heitt úti að ég loka öllum gluggum um leið og sólin er komin sæmilega hátt á loft, en sem betur fer er þakskyggnið á húsinu nógu stórt til að sólin nái ekki að skína á gluggana. Það var það sem gerði alveg út af við okkur á gamla staðnum.
Annars er ekkert planað um helgina, aldrei þessu vant, fyrir utan að mig langar að fara aftur með Önnu í sund. 🙂