Föstudagur 29. júlí 2005
Finnur 31 árs!
Hann Finnur á afmæli í dag – hann er orðinn ÞRJÁTÍU OG EINS árs gamall!! 🙂 Anna Sólrún færði honum tvær “Calvin og Hobbes” bækur, pakkaðar inn í plastpoka og viskustykki áður en hann fór í vinnuna svo ekki ætti afmæliskötturinn að éta hann í ár… 🙂
Hann á annars afmæli í miðri afmælisvertíð, Addi frændi átti afmæli í gær og ekki á morgun heldur hinn eiga Ragnheiður, frænka Finns, og Hildur Sif, þeirra nýsamanpússuðu Öddu og Halla, afmæli. Daginn þar á eftir á svo (Hreinn) Orri frændi í LA afmæli, Diljá systir Adda frænda á afmæli 11. ágúst, pabbi Finns þann 17., Óli Ágúst þann 18 og svo mætti lengi telja!!
It’s Finnur’s 31st birthday today!! Anna Sólrún presented him with two Calvin and Hobbes books, wrapped in a plastic bag and some tea-towels this morning, so now he won’t get eaten by the birthday-present-cat.