2005-10-12Uncategorized Standard
Miðvikudagur 12. október 2005
Dugleg stelpa!
Anna Sólrún tók sig til og pissaði í kopp í fyrsta skipti í morgun. Það er alltaf hálf kostulegt að fylgjast með henni á koppnum þessa dagana þar sem hún situr í þrjár sekúndur, stendur svo upp og athugar hvort eitthvað sé komið og endurtekur svo leikinn. Venjulega hefur ekkert verið í koppnum enda sest hún yfirleitt *eftir* að hún er nýbúin að pissa í bleyjuna. Við breyttum þó til í morgun og létum hana setjast um leið og við fórum á fætur og viti menn, hún bara pissaði í koppinn! 🙂
Hún varð að sjálfsögðu himinlifandi þegar hún stóð upp og sá afraksturinn og sagði hátt og snjallt: “Duuuuuleg!” 🙂