2005-11-29Uncategorized Standard
Þriðjudagur 29. nóvember 2005
Hann á afmæli’ í dag! 🙂
Hann pabbi er fimmtugur í dag!! Og það sem er kannski ótrúlegra er að hann er hérna hjá okkur í þessum skrifuðum orðum! 🙂 Þeir feðgar komu hingað á laugardaginn og hafa haft það gott, verið út að leika, að versla og slappað af hérna heima. Reyndar er núna rigning en samt 15 stiga hiti – og hver veit nema það hætti að rigna fljótlega… 🙂 Við höldum að hann hafi dregið með sér veðrið frá Englandi!
Annars allt gott að frétta, Anthony hefur verið endurskírður “Antis” af Önnu Sólrúnu og þeim kemur bráðvel saman. Við ætluðum að kaupa handa henni tvíhjól með hjálparadekkjum um helgina, en hún var eitthvað beig við þau svo við settum þau plön bara í salt… 🙂