2006-05-10Uncategorized Standard
Miðvikudagur 10. maí 2006
Dance people, dance!
Við Hrefna eyddum kvöldinu í kvöld með Augusto og Söruh að spila XBox leikinn Dance Dance Revolution á dansmottunni okkar. Augusto tók að sér að dansa sig í gegnum flest lögin og er nú rennisveittur á leiðinni heim til sín enda er þessi leikur ágætis líkamsrækt og á við bestu hlaupatæki.
Hrefna er annars þessa dagana að kenna Önnu stafrófslagið, svona í og með. Anna er búinn að læra eftirfarandi hluta:
“a b sé dé, eh bé ha. Ætla koma standa hjá”
Söng þetta tíu sinnum við matarborðið í kvöld (afi mosó hefði nú sagt eitthvað…) 😉