Sunnudagur 3. september 2006
Brúðkaup!
Í dag gengu þau Augusto og Sarah í hjónaband og við mættum að sjálfsögðu til að fagna með þeim! Athöfnin var í garði í San Jose núna í morgun og síðan var veisla á veitingastað til klukkan fimm. Þar var borðaður matur og síðan dansað og allir skemmtu sér konunglega! 🙂 Anna Sólrún stóð sig eins og hetja og fór ekki að missa vitið af þreytu fyrr en einmitt þegar það var kominn tími á brottför.
Þar sem að ég er hálfri öld á eftir með myndirnar á síðunni, þá setti ég upp “svindl”-myndasíðu (eins og Adda og Halli) til að pota nú giftingarmyndunum hratt í loftið…
Í öðrum fréttum þá er Nökkvi bróðir nítján ára í dag og er það vel. 🙂 Það skal líka tekið fram að í dag tókum við okkar 20.000 mynd á myndavélina okkar… Við fengum hana í apríl í fyrra, sem þýðir að við tökum tæplega 1200 myndir á mánuði, eða tæplega 40 myndir á dag! Reyndar er það frekar svo að við tökum myndir af og til, en tökum í staðinn grilljón myndir í einu og notum svo bara nokkrar af þeim.