2007-01-24Uncategorized Standard
Skortur á einbeitningu
Ég stend sjálfa mig að því þessa dagana að vinna í örstutta stund og hlaupa síðan á vefinn. “Rífressa” blogg allra vinanna og er svo döpur þegar ekkert nýtt hefur gerst. Þannig að núna er ég að setja “gott fordæmi” og setja eitthvað nýtt inn í dag. Í hinn kantinn þá er von á prófessornum mínum í dag eða á morgun. Ég hélt að hann kæmi í dag, en það bólar ekkert á honum. Á að hitta hann á morgun, og mig langar að reyna að stilla honum upp við vegg með það sem ég er að gera. Nóg komið af vishý-vashý óvissu. Við sjáum hvað setur. Það er eitthvað lítið um einbeitningu.