Fimmtudagur 1. mars 2007
Þrjáááááátíu ára!!!
Jæja, það er löngu kominn fyrsti mars á Íslandi þó svo að klukkuna vanti nokkrar mínútur í miðnætti hér. Ég held að ég láti það duga og þar með er ég orðin… ÞRÍTUG!!! Kannski kominn tími til bara, flestir vinirnir komnir í 3x klúbbinn og það er alltaf gaman að falla í hópinn!… 🙂
Það er annars ekkert stórkostlegt planað á næstunni, ég þarf að klambra saman plaggati fyrir enn eina ráðstefnuna sem ég fer á þann 11. mars. Í þetta sinn liggur leiðin aftur til Houston, Texas en stóri munurinn á ferðinni þetta árið og í fyrra er að nú fer ég alveg aaaalein. Ég kem síðan aftur 14. mars og svo er von á Hollu, Óla og Ágústu Maríu þann 16. mars. Þau ætla að halda uppi fjörinu fram til 2. apríl og hver veit nema við notum tækifærið og höldum “almennilega” upp á áratugina þrjá.
Það má svo ekki gleyma að óska Steinunni, systur Finns, með afmælið í dag. Happy birthday Anthony on March 2nd!! Sjö ára brúðkaupsafmæli fylgir á 3. mars og Eyrún, elsta systir Finns, á stórafmæli þann 5. mars. Fyrir tveimur dögum áttu svo Guðrún ex-Fremont búi og Óðinn sonur Huldu afmæli! Sum sé hamingjuóskir á alla bóga!! 🙂