Pabbahald og San Fran
[Finnur held Bjarki for the first time today, and then he and the two Annas went up to the city to play tourists and meet a friend of Anna Sr. I on the other hand went clothes shopping for a bit with Sarah, and also picked up the new Harry Potter. I got to page 100 before succumbing to a massive headache. Feeling much better now (it’s almost 2am and I just finished pumping) and about to go to bed. Bjarki’s been stable today, although he had a few “Bradies” today.]
Finnur hélt á Bjarka Frey í fyrsta skipti í dag. Hann og Önnurnar héldu svo upp í borg á meðan ég dvaldi heima (enda pumpuföst). Ég skrapp reyndar með Söruh í fataleiðangur, uppskar fjóra boli og svo nýjustu Harry Potter bókina. Komst á síðu 100 áður en ég gafst upp vegna hausverkjar. Líður hins vegar miklu betur núna (klukkan er tvö um nóttu og ég var að klára að pumpa) og nú er ég við það að fara að sofa aftur. Bjarki er víst búinn að vera nokkuð stöðugur í dag, fyrir utan að hann missti niður hjartsláttinn nokkrum sinnum fyrr í dag (Brady-köst). Sjáum hvað setur.