Soffíu-heimsókn
[Nothing new today, just the usual holding pattern. Soffía stopped by the hospital for a visit with her adorable 7 week twins, along with two of her other boys. It was very nice to have somebody to chat to, and break of the monotony of the NICU! Went to Ikea after daycare and bought a chest of drawers for Anna. Who knew we could fit yet another piece of furniture into our already crammed-to-the-hilts house!]
Ekkert nýtt í dag, bara sama og síðast. Soffía kíkti við í heimsókn með tvíburana og Ágúst Bjarka og Kjartan. Þau voru búin að vera á læknarúnti í nágrenninu. Það var afskaplega gaman að hitta þau og spjalla aðeins saman, en það verður lítið um frekari spjall því að öll stór-fjölskyldan er að flytja til Íslands eftir tvær vikur! Þau eiga eftir að skilja eftir sig stórt skarð í Íslendingaflórunni hérna úti. Um kvöldmatarleytið fórum við í Ikea og keyptum litla kommóðu fyrir Önnu Sólrúnu. Ég er nú bara gapandi yfir því að við skulum hafa komið fyrir enn einu húsgagninu í húsið!