A Prairie Home Companion
Við hjónakornin skelltum okkur upp í borg um helgina, ásamt Katie og Dirk, til að vera viðstödd “live broadcast” á A Prairie Home Companion. Krakkarnir voru á meðan í öruggum höndum Söruh og Augusto (sem munu fara upp í borg um næstu helgi, en þá er seinni sýningin af tveimur í San Fran) fyrir utan að Jason þeirra var með magapest, og því megum við eiga von á einni svoleiðis í vikunni.
Hvað um það. A Prairie Home Companion er hálfgerð útvarps-stofnun í Bandaríkjunum. Á hverju laugardagskvöldi klukkan 18 ómar intro-lagið, sungið af Garrison Keillor undanfarin 30 ár eða svo. Næstu tveir klukkutímar fara svo í lög og leikþætti, allt flutt af um 10 manns eða svo. Höfuðpaurinn sjálfur er Hr. Keillor. Sér til halds og trausts er hann með tvo leikara (karl og konu) svo og hljóðmyndunar (sound effects) gæja. Fimm hljómfæraleikarar sjá um undirspilið, og svo eru alltaf góðir gestir sem koma og syngja og/eða spila með.
Horft úr “nosebleed section” í War Memorial Opera House
niður á sviðið þegar sýningin var búin. Hljómsveitin hélt
áfram að spila nokkur lög eftir að sjálf útsendingin var búin.