Mannát
2008-08-28Uncategorized Standard
Bjarki var að borða litla ostbita í morgun á meðan ég stóð við eldavélina og hrærði í hafragrautspotti:
Hrefna (lítur brosandi til Bjarka): “Ertu að borða ostinn?”
Hrefna (hugsar með sér): “Þetta hljómaði eitthvað skrítið…”
Hrefna gerir sér grein fyrir að einn bekkjarfélagi Bjarka heitir Austin. Hrefna gerir nokkrar tilraunir til að spyrja upp á nýtt, en í hvert skipti hljómar það eins og hún sé að spyrja “Ertu að borða Austin?”. Bjarki hlýtur að halda að móðir sín sé klikk. 🙂