Rafmagnslaus sundlaug
2009-02-14Uncategorized Standard
Rétt fyrir hádegi í dag var hringt frá sundskólanum og okkur sagt að sundlaugin væri rafmagnslaus, að kennsla myndi því falla niður. Við Anna vorum einmitt við það að leggja af stað í sund og þar á eftir ætluðum við í Ikea, sem var lokað í síðustu viku. Í staðinn fórum við því bara beint í Ikea og borðuðum hádegismat og keyptum hengi-græju fyrir úlpur og húfur krakkanna.
Þegar við vorum búnar í Ikea hringdi ég í sundlaugina, og fékk að vita að hún væri ennþá rafmagnslaus. Það var því lítið annað hægt að gera en að fara bara heim aftur, þar sem Anna fór í heimsókn til einnar nágrannastelpu. Eftir það fór Finnur með krakkana í CostCo á meðan ég stóð í smávægilegum þrifum. Kvöldið leið síðan í rólegheitum yfir Mythbusters og Dirty Jobs.