Ein í kotinu
2009-03-26Uncategorized Standard
Elsa, Þráinn og börn lögðu af stað heim á leið í morgun, og þar með erum við aftur ein í kotinu. Við hlökkum til að heimsækja þau í maí! Þegar þau voru farin fór ég með Bjarka til háls-, nef- og eyrnalæknisins, og hann sagði að ef Bjarki fær tvær eyrnabólgur fyrir júní, þá er líklegast best að setja rör í eyrun á honum. Hér er nefnilega að koma vor og sumar, og þá þorna yfirleitt eyrun upp, og því kannski of geyst að fara að setja rör í alveg strax.