Leika núna?
2009-04-08Uncategorized Standard
Hann sonur okkar er frekar fyndinn stundum. Hann fær brjóstsviðalyfið sitt með mjólkurpela um miðnætti og yfirleitt steinsofnar hann í fanginu á manni þegar hann er búinn með pelann. Eitt kvöldið gerðist það þó ekki, því hann glaðvaknaði og stóð kátur í rimlarúminu sínu og vildi fara að leika.
Hann tók því þó með jafnaðargeði þegar ég kyssti hann góða nótt og slökkti ljósið og við lögðumst báðir til hvílu – í sitt hvoru rúminu. Hann kvartaði ekkert, lá bara og horfði upp í loftið, bylti sér öðru hvoru en sagði ekki neitt.
Þangað til að allt í einu heyrist í mínum, alveg upp úr þurru:
“BÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚMMMMM!!!”
Svo fór hann að sofa stuttu síðar. Gaman að þessum litla kút. 🙂