Sjálfsmynd
2009-05-22Uncategorized Standard
Tók þessa mynd í hádeginu, í þeim tilgangi að verða mér úti um nýja mynd fyrir fésbókina. Var endanlega búin að fá nóg af þeirri gömlu. Stóð því fyrir framan glugga, hélt á myndavélinni (50 mm linsa) og reyndi að hitta á andlitið… sem er hægara sagt en gert með þrönga linsu og stutta handleggi. Setti inn svartar rendur fyrir ofan og neðan til að “smámyndin” á fésbókinni kæmi betur út. Merkilegt alltaf hvað það er mikill munur á stóru prófílmyndinni og litla fésbókar-ferningnum, mynd sem lítur vel út stór lítur oft illa út lítil!