Nýjustu tölur
2009-06-29Uncategorized Standard
Ég fór með Bjarka á heilsugæslustöðina í dag, þar sem hann fór í endurtektar-heyrnamælingu því hann mældist með skerta heyrn vegna eyrnabólgu í vor. Læknirinn var mjög ánægð með hann og sagði að Bjarki mældist með eðlilega heyrn. Ég notaði tækifærið líka og skellti honum á vogina og bar hann saman við mælistiku. Hann mældist 11.5 kg (25.35 lbs) og um 86 cm (34 inches) á lengd.
Samkvæmt þessari vefsíðu:
Age in Months | Percentile for Weight | Percentile for Height |
---|---|---|
21 | 27 | 64 |
24 | 17 | 35 |
Jamm, langur og mjór… 🙂