2001-10-28Uncategorized Standard
Sunnudagur 28. október
Auka sofutími
Í nótt var klukkunni seinkað um 1 klst sem þýddi að ég svaf í 8 tíma en ekki 7 eins ég hefði gert annars. Aldrei þessu vant var ég því útsofin í morgun og ég mætti sæmlilega skýr á kvalafund klukkan 10. Restin af deginum hefur hins vegar farið að mestu í vaskinn… ég náði að horfa á skrópu-fyrirlestuinn minn, en annars er ég bara búin að ranghvolfa í mér augunum út af rafsegulfræðidæmum. Í kvöld á að horfa á sjónvarpsþættina sem ég tók upp í síðustu viku sem ég hef ekki náð að horfa á ennþá… Vei fyrir West Wing! 🙂 Svo er fræðilegur möguleiki að ég nái að búa til alvöru dagbókarsíður með myndum! Við sjáum til! 😉