2001-11-27Uncategorized Standard
Mánudagur 26. nóvember
Tíðindaleysi
Hvað getur maður skrifað þegar dagurinn er bara búinn að vera alveg hundómerkilegur? Keypti reyndar miða til Minneapolis í dag þannig að núna erum við komin með flugmiða alla leiðina heim um jólin. Lokamiðaverð reyndist um $930 á manninn. Það eru hundrað þúsund krónur íslenskar á kjaft – en ég er alveg viss um að það er hverrar krónu virði að anda að sér hreinu lofti og fá almennilegan kvebba í nebba! 🙂 Fór annars bara í tíma og reyndi svo að leysa hundómerkilegt heimdæmi sem vildi ekki láta leysa sig – ég ætla að hitta TA-inn á morgun og reyna að fá þetta á hreint! Í verri fréttum er að Kerri náði sér í gubbupest um helgina þannig að ég vona að hún hafi ekki verið mjög smitandi í dag…