2001-12-10Uncategorized Standard
Mánudagur 10. desember
Einu leiðindi minna
Eitt leiðindi búið, tvö eftir. Síðan verður gaman. Fyrir þá sem er að hrista hausinn þá er ég að gera litla tilraun til að nefna ekki p-orðið ógurlega sem tröllríður núna öllum vefdagbókum! Hvernig er það?… Eru allir bloggarar námsmenn?!?! En sem sagt, í dag kláraðist eitt leiðindi og í því tilefni hélt Taly “Hanukkah” boð, með Krispy Kremes kleinuhringjum því maður á víst að borða steikta hluti á Hanukkah. Hún kveikti á kertum og síðan fór fullt af fólki á ísskauta, en ég og Deirdre röltum aftur í Packard, hún til að láta Matt sækja sig en ég til að reyna að koma smá vinnu í verk.