2002-02-19Uncategorized Standard
Mánudagur 18. febrúar 2002
Forsetadagur
Finnur samdi um það í vinnunni að fá að nota frídaginn í dag einhvern tímann seinna þannig að hann fór í vinnuna og ég líka. Að vinnudegi loknum eldaði ég kjúlla frá Kokknum án klæða og við buðum Augusto í mat. Á meðan við biðum eftir kjúllanum horfðum við á High Fidelity og eftir matinn horfðum við á Moulin Rouge – og ég er ennþá að sparka í mig fyrir að hafa ekki asnast til að sjá hana í bíó! Þvílík ræma! Algjör snilld!! 🙂