2002-03-18Uncategorized Standard
Mánudagur 18. 2002
Búin!
Eftir 28 tíma vöku þá er verkefnið loksins búið (þremur tímum á eftir áætlun – og þá á áætlun samstarfskonu minnar sem virðist hafa þá lensku að skipuleggja allt þannig að það reddist aðeins of seint! Ég verð að muna það næst þegar við lendum saman í verkefni… hrollur…)
En núna er ég komin í “spring break”, eins og það heitir hérna, og ekkert hægt að kvarta undan því! 🙂
Á morgun legg ég af stað til Englands að hitta pabba og Anthony litla bróðir, og síðan er planið að kíkja til Belgíu á Huldu móðursystir og fjölskyldu! 🙂
En núna held ég að ég fari nú bara að koma mér heim… en fyrst:
Athug dagsins: Sólin rís alveg rosalega hratt hérna í Kaliforníu!