2002-04-30Uncategorized Standard
Sundraunir
Synti 950 metra í dag. Hélt reyndar að ég myndi deyja einhvers staðar þarna í 500 metra skriðsundinu – stundum er eins og líkaminn sé gerður úr steini og hann vilji ekki fljóta! Nú er bara að rumpa af heimadæmum í “tónlistartímanum” (sem er eiginlega miklu meiri rafmagnsverkfræði en tónlist), sitja í gegnum tvo tíma af “reverb”, fara heim og horfa á fyrsta nýja Buffy þáttinn í sex vikur.
Skítaveður
Það er skítakuldi úti (11 gráður C – “feels like” 9 gráður) og ég er við það að fara í sundtíma.