2002-06-20Uncategorized Standard
Fimmtudagur 20. júní 2002
Víhí!!
Varðandi kóðaauglýsinguna að neðan þá held ég að þetta sé komið núna þökk sé matlab grúppunni á groups.google.com… ég get amk teiknað punkt og dregið hann til sem er talsvert meira en ég gat í morgun! Ég þarf bara að passa mig á því að stoppa músina áður en ég sleppi takkanum, því ef ég sleppi músartakkanum á hreyfingu þá vill punkturinn ekki stoppa… 🙂
Varðandi lyklana að disknum stóra þá fer ég að ná í aukasett á eftir, svo í fyrrmálið og á hverjum morgni fram að sunnudegi þarf ég núna að fara í laaangan göngutúr – sem er bara fínt! 🙂