2002-07-24Uncategorized Standard
Miðvikudagur 24. júli 2002
Einsleitir dagar
Er að reyna að koma hausnum í vinnuhæft ástand aftur… gengur ekkert sérstaklega vel neitt… en ég er búin að gera baráttuplan fyrir morgundaginn svo að kannski festist ég ekki á vefnum heldur geri eitthvað af viti! 🙂
Kvöldin hafa einkum farið í að reyna að koma skipulagi á allar myndirnar sem við tókum og smækka þær og lagfæra áður en við byrjum að hrúga þeim inn á vefinn. Ég ætlaði sko að setja inn síður í dag… en það tókst ekki. Ég festist nefnilega yfir Welcome to the Dollhouse og þar á eftir yfir þætti um Mike Myers. Oh boy. Sjónvarp er af hinu afar-illa…